157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:02]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það er ekki annað hægt en að vera á rauða takkanum hér því að þessi áætlun er algerlega ómarktæk. Hér kemur enn og aftur upp hæstv. orkumálaráðherra, algerlega óraunverulega tengdur við það sem er að gerast hérna í samfélaginu. Það er í engu svarað gagnrýni frá fjármálaráði í nefndaráliti meiri hlutans. Það er í engu brugðist við breyttum forsendum. Hér á bara að afgreiða eitthvað, stimpla eitthvað þó að það standist ekki.

Virðulegur forseti. Það er ekki annað hægt en að segja nei í þessari atkvæðagreiðslu.