157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Miðflokkurinn getur ekki stutt þessa fjármálaáætlun og við munum greiða atkvæði á móti henni, einfaldlega vegna þess að hún mun ekki standast. Forsendur eru brostnar í svo verulegum mæli að það er fyrirséð að þetta mun ekki standast. Við erum að biðja um það að ríkisstjórnin komi hreint fram, tali ekki bara um hallalaus fjárlög. Ef þeir ætla að ná hallalausum fjárlögum þá vil ég fá að vita: Hvaða skatta ætlið þið að hækka á fólkið í landinu og hversu mikið, hversu hátt? Vegna þess að það er eina leiðin sem þið kunnið til að skila hallalausum fjárlögum. Eins og þetta er núna óbreytt verða þessi fjárlög með 15–20 milljarða halla á næsta ári. Segið okkur hvaða skatta þið ætlið að hækka.

(Forseti (ÞSv.): Forseti minnir þingmenn á að ávarpa ætíð forseta og tala ekki í 2. persónu.)