157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Sá sem hér stendur missti því miður af umræðunni um fjármálaáætlun í síðustu viku vegna starfa á vegum þingsins í Bandaríkjunum á NATO-þinginu en ég sé að sú vika var gríðarlega illa nýtt til þess að fá einhverjar forsendur á bak við þessa fjármálaáætlun sem hægt væri að vinna með. Hér er gert lítið í tölum hv. þingmanna, hvernig talað er um fjármálaáætlunina. Það er gert lítið úr henni, hún hafi ekki mikið vægi eða hvernig sú hugmyndafræði er. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að frá 2015, þegar lög um opinber fjármál voru samþykkt, fyrir rúmum tíu árum, hafi verið töluvert gagn að henni. En þá eigum við líka að nýta það í umræðu í þinginu og vinnu þingsins, nýta það sem lög um opinber fjármál geta fært okkur. Sú umræða er ekki að fara fram í tengslum við þessa fjármálaáætlun. Það koma engar tillögur frá meiri hluta fjárlaganefndar um að horfa fram á veginn og það er skrýtið með tilliti til þess ástands sem er að skapast í samfélaginu (Forseti hringir.) að hér skuli ekki hafa verið uppfærðar allar forsendur á bak við eins og gafst færi á og við þurfum að gera miklu betur. (Forseti hringir.) Ég verð á rauðu eins og við Sjálfstæðismenn allir. Hér hefði þurft að vinna málin miklu betur en verið er að gera.