157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[13:05]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Annað árið í röð sýnist mér allir stjórnarandstæðingar greiða atkvæði gegn fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Mér finnst ástæða til að nefna þetta hér vegna þess að það er venja, hafði verið þar til í fyrra, að fulltrúar stjórnarandstöðuflokka sætu hjá við afgreiðslu fjármálaáætlunar í ljósi þess að ríkisstjórnin ber auðvitað ábyrgð á því hvernig hún gengur um lög um opinber fjármál. Annað árið í röð sjá fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna þann kost einan að greiða atkvæði gegn ályktuninni, vera á rauðu. Ég bara vona að hæstv. ríkisstjórn, hæstv. fjármálaráðherra og þingmenn stjórnarflokkanna líti alla vega á að það séu mögulega einhver réttmæt skilaboð í þessari breytingu sem því miður hefur orðið og ekki út af engu. Ég, eins og þingflokkur Miðflokksins, mun segja nei í þessari atkvæðagreiðslu eins og blasir nú þegar við.