1100 ára afmælis Alþingis minnst.
Ég vil þakka hæstv. forseta Alþingis fyrir þingsályktunartillöguna sem, eins og hún segir, er fyrir hönd forsætisnefndar og afar mikilvægt mál og kannski ekki seinna vænna; það styttist mjög hratt í 2030, satt best að segja. Á síðasta þingi var ég að vinna með fólki sem hafði hug á því að einn af þeim þáttum sem hægt væri að koma þarna við væri að endurreisa tilgátuhús, fá tjöldin sem fyrrum þingmaður Sigrún Magnúsdóttir datt niður á á sínum tíma í Skotlandi, ef ég man rétt, og við fengum til sýnis í allt of skamman tíma á Þjóðminjasafninu. En það mætti einfaldlega hugsa sér að endurreisa slíkt, annaðhvort með raunverulegum hætti eða með einhvers konar sýndarhætti.
En mig langaði einfaldlega að koma hingað upp og lýsa yfir stuðningi við þessa mikilvægu þingsályktunartillögu en einnig að spyrja hæstv. forseta hvort einhverjar hugmyndir hafi verið ræddar í forsætisnefndinni eða undirbúnar af hálfu skrifstofu Alþingis, einfaldlega vegna þess að tíminn er orðinn knappur og sú framkvæmdanefnd sem þarna var skipuð í kjölfarið á þessari þingsályktun þarf, held ég, að hafa nokkuð hraðar hendur til að koma öllum hugmyndum af stað nema að það séu einhverjar hugmyndir þegar farnar af stað. Mig langar að heyra mat hæstv. forseta á því, herra forseti.