1100 ára afmælis Alþingis minnst.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. 10. þm. Suðurk. andsvarið. Það er alveg rétt. Það er ekki langur tími til stefnu, u.þ.b. þrjú og hálft ár þar til afmælisárið rennur upp. Það var rætt í hv. forsætisnefnd að setja ekki í þessa tillögu einstök verkefni eða einstaka viðburði heldur að marka því ramma sem okkur þykir hæfa þessu merka tilefni með því að leggja áherslu á fræðslu, mikilvægi lýðræðis, lýðræðislegrar stjórnskipunar og þátttöku í lýðræðissamfélagi og á því er fjöldi flata, þúsund fletir ef út í það er farið. Það er hins vegar þannig að við efndum til hugmyndasöfnunar nú í vetur í kringum áramótin. Þá bárust 77 tillögur frá almenningi í þeirri söfnun. Þær munu að sjálfsögðu ganga beint áfram til framkvæmdanefndarinnar og svo er það líka þannig að það eru auðvitað fleiri en hið háa Alþingi með augun á þessum merku tímamótum því að fólk hefur komið að máli við mig, og alveg örugglega við fleiri hv. þingmenn, með hugmyndir að viðburðum, framleiðslu fræðsluefnis og sjónvarpsefnis og annað slíkt sem er farið af stað í sumum tilvikum en hefur það að markmiði einmitt að lyfta þessum tímamótum og stuðla að almennri þekkingu og fræðslu um sögu okkar en einnig um það hvar við stöndum núna eða munum standa hér á 21. öldinni og hvað það þýðir fyrir framhald lýðræðis á Íslandi. Þannig að svarið er: Það hafa margar hugmyndir komið upp, margar góðar hugmyndir. Það verður í höndum framkvæmdanefndarinnar að forgangsraða þeim og svo þarf auðvitað að fjármagna þetta allt saman. En ég er að vona að þetta verði hæfileg blanda af opinberum viðburðum og síðan viðburðum eða einhverju sem er sprottið úr grasrótinni meðal almennings og getur átt sér stað um allt land.