157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

1100 ára afmælis Alþingis minnst.

630. mál
[14:31]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að þakka hæstv. forseta fyrir að flytja þessa tillögu sem við í forsætisnefnd stöndum á bak við. Mig langaði kannski að ýta enn frekar undir það sem hæstv. forseti var að segja hér í andsvari, að þetta eru merk tímamót og þó að við séum hér að setja á laggirnar nefnd og ákveðinn ramma um það hvernig Alþingi mun minnast þessa viðburðar þá vil ég nota tækifærið og hvetja áhugasama til að koma jafnframt með okkur þannig að þetta sé svolítið sjálfsprottið líka. Það hafa verið hugmyndir um stell eða glös og alls konar hluti. Kannski er Alþingi ekki að fara að gera það en ef einhverjir þarna úti hefðu áhuga á að gera það með einhvers konar varningi eða viðburðum eða öðru, þá myndi ég hvetja til þess. Þetta er merkur viðburður og við eigum að njóta hans og nýta hann vel, eins og hæstv. forseti kom inn á, til að bæði fræða og nota tækifærið til að ræða um mikilvægi þingsins og mikilvægi lýðræðis á tímum sem þessum.