157. löggjafarþing — 127. fundur,  16. júní 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1212, um ferðir utanríkisþjónustunnar, frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1234, um stöðu heimilislækna og aðgengi að heilsugæslu, frá Ingibjörgu Isaksen, og á þskj. 1209, um skipan í stjórnir, nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa, frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Þá hafa borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1218, um stöðugildi hjá RÚV, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, og á þskj. 1205, um skipan í stjórnir, nefndir, ráð, vinnu- og starfshópa, frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.