mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Sjálfstæðisflokks um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Sigurður Örn Hilmarsson taki sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd og velferðarnefnd í stað Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur. Einnig að Ingveldur Anna Sigurðardóttir taki sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Vilhjálms Árnasonar og sem varamaður í fjárlaganefnd í stað Vilhjálms Árnasonar.
Jafnframt að Ólafur Adolfsson taki sæti sem varamaður í Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES í stað Vilhjálms Árnasonar og Jens Garðar Helgason taki sæti sem varamaður í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins í stað Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.