157. löggjafarþing — 129. fundur,  18. júní 2026.

ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

564. mál
[15:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Sigmundur Ernir Rúnarsson) (Sf):

Herra forseti. Við fjöllum hér um mál sem varðar ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefur fjallað í þaula um þetta ágæta þingmál en með frumvarpi þessu er lagt til að almenn heimild til að ráðstafa skattfrjálst viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar í tengslum við öflun íbúðarhúsnæðis til eigin nota verði gerð varanleg, sem er mikilsverð viðbót við þetta þingmál. Sömuleiðis eru lagðar til afleiddar breytingar á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð og lögum um tekjuskatt. Þeim er ætlað að samræma betur skilyrði úrræðanna tveggja, einfalda framkvæmd og koma í veg fyrir að ólík skilyrði í úrræðunum tveimur skapi óæskilega hvata.

Frumvarp þetta er í samræmi við húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var 29. október 2025. Heimild til að ráðstafa skattfrjálst séreignarsparnaði inn á höfuðstól húsnæðislána var kynnt í svipaðri mynd árið 2014 og lögfest þá til þriggja ára.

Sá sem hér stendur vekur athygli á því að í umsögnum til nefndarinnar kom fram ánægja með að úrræðinu yrði nú markaður varanlegur tímarammi með skýrum fjárhæðarmörkum. Þá var talið til bóta að ekki verði gerð krafa um að tíu ára tímabil ráðstöfunar sé samfellt heldur geti rétthafi hvenær sem er nýtt sér heimildina eða allt þar til samtals 120 mánaða ráðstöfunartíma er náð.

Herra forseti. Það er með öðrum orðum verið að festa þetta úrræði í sessi og tíminn eða öllu heldur tímaramminn er fyrirsjáanlegur.

Jafnframt var bent á í umsögnum til nefndarinnar að fara ætti varlega í inngrip í viðbótarlífeyrissparnað þar sem meginhlutverk hans er að bæta eftirlaun á efri árum. Meiri hlutinn undirstrikar að um valfrjálsa heimild sé að ræða og það sé ákvörðun hvers og eins hvort viðkomandi vilji nýta sér hana og upp að hverju marki. Þessu til stuðnings bendir meiri hlutinn á 3. mgr. 5. gr. þar sem fram kemur að skuldheimtumönnum sé óheimilt að krefjast þess að skuldari ráðstafi séreignarsparnaði samkvæmt lögum þessum. Þetta er að mínu mikilvægt.

Meiri hluti nefndarinnar gerði ýmsar breytingar á þingmálinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar gildistöku frumvarpsins. Í 7. gr. frumvarpsins er gildistökuákvæði. Þar segir í 1. mgr. að lögin öðlist þegar gildi. Þá er kveðið á um það í 2. mgr. að frumvarpið gildi afturvirkt frá 1. janúar 2026. Þannig verði rétthöfum, sem hafa ekki náð samanlögðu tíu ára tímabili við að ráðstafa viðbótariðgjöldum skattfrjálst fyrir gildistökuna, heimilað að nýta sér uppsöfnuð iðgjöld frá 1. janúar 2026 til að ráðstafa inn á höfuðstól húsnæðislána.

Í umsögn Skattsins til nefndarinnar kom fram að frumvarpið muni kalla á umtalsverða uppstokkun á þeim kerfum sem hafa verið nýtt vegna ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán samkvæmt lögum nr. 40/2014 og stuðnings til kaupa á fyrstu íbúð samkvæmt lögum.

Með hliðsjón af því sem fram kemur hér að framan telur meiri hlutinn rétt að leggja til breytingu á gildistöku frumvarpsins. Heppilegra þykir að fresta henni um nokkra mánuði til að tryggja að nauðsynleg kerfi verði tilbúin þegar lögin taka gildi, svo unnt sé að taka á móti umsóknum strax frá upphafi.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar fyrirsögn frumvarpsins. Heiti frumvarpsins er frumvarp til laga um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild). Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga þar sem jafnframt eru lagðar til afleiddar breytingar á tveimur öðrum lagabálkum. Það hefur ekki tíðkast að setja efnisgreiningu frumvarpa aftan við heiti nýrra heildarlaga í sviga heldur eigi það eingöngu við um breytingarlagafrumvarp. Leggur meiri hlutinn því til að orðin varanleg heimild falli brott úr heiti frumvarpsins. Þessu til stuðnings má benda á a-lið 2. töluliðar 8. gr. frumvarpsins þar sem vísað er til heitisins án efnisgreiningarinnar í sviga.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir hér í þessari pontu.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek og Ragna Sigurðardóttir.

Herra forseti. Ég legg til að þetta mál fái hér framhaldsmeðferð í sal þingsins.