innviðafélag.
Virðulegur forseti. Það er með ánægju sem ég mæli fyrir nefndarálit milli 2. og 3. umræðu sem segja má að sé ávöxtur af umræðu milli stjórnar og stjórnarandstöðu og í raun umræðunnar hér undir 2. umræðu málsins í þingsal. Þetta mál hefur vakið áhuga margra innan og utan þings.
Það eru gerðar þrjár breytingartillögur, raunar fjórar, og ein þeirra meira að segja í tveimur liðum, með fyrirliggjandi frumvarpi. Í fyrsta lagi eru gerðar tvær tillögur er varða 7. gr. frumvarpsins um veggjöld, annars vegar til að skilgreina betur hver ber ábyrgð á greiðslu veggjalds og hins vegar til að skýra betur hvaða útgjöld standa að baki ákvörðun um veggjald. Fyrri tillagan skýrir að skráður eigandi beri ábyrgð á greiðslu veggjalda en þó þannig að ef um er að ræða kaupleigu, eignaleigu eða fjármögnunarleigu ber umráðamaður ábyrgð á greiðslu veggjalda. Það er rétt að ítreka að innviðafélaginu er heimilt að gera ýmiss konar samninga, m.a. við ökutækjaleigur, ef það þykir hagkvæmt. Meiri hlutinn bendir á það vegna þeirrar umræðu sem var um það í þingsal en er ekki að hvetja til neinna slíkra samninga nema þeir teljist hagkvæmir.
Í síðari tillögunni sem tengist veggjöldum er undirstrikað, með því að færa gjaldtökuheimildina inn í frumvarpið um innviðafélagið, að félagið geti orðið snjóbolti eins og stundum hefur verið nefnt hérna, þ.e. gjaldtakan skuli standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu vega eða skilgreinds samgöngukerfis. Líkt og í vegalögum er tekið fram að heimilt er einnig að byggja gjaldtöku á sjónarmiðum um vernd umhverfis, þróun skilgreinds samgöngukerfis, umferðaröryggi og stýringu umferðar.
Til eðlilegs afraksturs telst eðlileg ávöxtun eigin fjár og annars bundins fjármagns félagsins að teknu tilliti til fjármögnunar, áhættu, líftíma, eðlis og umfangs viðkomandi verkefnis. Afrakstur samkvæmt þessu ákvæði skal byggjast á málefnalegum og gagnsæjum forsendum og standa í beinum tengslum við viðkomandi samgöngumannvirki eða skilgreint samgöngukerfi.
Varðandi umræðu sem hér varð þó nokkur um það hvernig eignir færast inn í félagið þykir rétt að hnykkja á því að í stað almennrar og óbeinnar heimildar um slíkt þá verði gert ráð fyrir að eignatilfærsla komi til í gegnum heimildarákvæði í 6. gr. fjárlaga. Auðvitað er hægt að hugsa sér að í sérlögum eða öðrum lögum geti komið bein heimild líka en þetta samspil við 6. gr. fjárlaga er áréttað með breytingu við 4. gr. frumvarpsins. En þar sem það er vilji til þess að félagið komist hratt og vel af stað er gerð tillaga um ákvæði til bráðabirgða um að Vaðlaheiðargöng, ný Ölfusárbrú og framkvæmdirnar við Hornafjarðarfljót geti runnið inn í félagið innan tveggja ára. Þetta bráðabirgðaákvæði hefur sem sagt gildistíma í tvö ár en vænta má að ráðist verði í þetta býsna fljótt. Varðandi Hornafjarðarfljót er hnykkt á því að þar sé verið að tala um framkvæmdina eins og hún er skilgreind í samgönguáætlun.
Síðan er gert ráð fyrir því að það sé heimilt að Alþingi kjósi einn til tvo áheyrnarfulltrúa sem sitji stjórnarfundi félagsins. Það er áréttað og hnykkt á því, til að raska ekki mikilvægri umgjörð um sjálfstæði félagsins, að þótt áheyrnarfulltrúar beri ekki sömu ábyrgð og stjórnarmenn og taki ekki þátt í formlegri ákvarðanatöku eða atkvæðagreiðslum eru þeir engu að síður bundnir trúnaði um allt sem fram fer á stjórnarfundum. Alþingi verður heimilt að kjósa einn til tvo áheyrnarfulltrúa. Segja má að þetta sé þriðji liðurinn í því að tryggja tengingu Alþingis við félagið. Í fyrsta lagi var lögð fram breytingartillaga milli 1. og 2. umræðu um að kynna ætti samninga um einstök verkefni í fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Í öðru lagi er verið að tengja allt sem lýtur að flutningi eigna yfir í félagið í gegnum fjárlög. Og svo í þriðja lagi með þessu heimildarákvæði um áheyrnarfulltrúa.
Um málið í heild ætla ég ekki að hafa langt mál nú enda voru fluttar margar og góðar ræður um það við 2. umræðu um málið. En í ljósi þess sem að framan hefur verið rakið leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef rakið efnislega og er að finna í nefndarálitinu.
Undir nefndarálitið rita, auk mín, sem er framsögumaður málsins, hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Grímur Grímsson, Ingvar Þóroddsson og Katrín Sif Árnadóttir.