tilhögun þingfundar.
Forseti vill geta þess að þingfundur í dag mun hefjast á umræðum um 2. dagskrármálið og svo önnur dagskrármál koll af kolli. Eftir að umræðum lýkur verður gert hlé á þingfundi fyrir þingflokksfundi. Að hléi loknu verður fyrsta dagskrármálið tekið fyrir, kosning eins aðalmanns og eins varamanns í Þingvallanefnd og svo hefjast atkvæðagreiðslur um dagskrármálin. Að atkvæðagreiðslum loknum verður settur nýr fundur til að ljúka megi í 3. umræðu og atkvæðagreiðslum í þeim málum sem eftir standa.
Forseti vill taka það fram í upphafi þessa fyrsta fundar dagsins að nokkrar fyrirspurnir hafa borist um lengd þingfunda og þá vill forseti benda hv. þingmönnum á að það er algjörlega í þeirra höndum.