157. löggjafarþing — 130. fundur,  19. júní 2026.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[10:43]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka bæði meiri hlutanum hér á Alþingi fyrir að þetta mál sé komið á dagskrá og vil sömuleiðis þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir sína ræðu. Þetta er mál sem er búið að vera í deiglunni og í umræðunni mjög lengi hér í íslensku samfélagi og ég tel að við séum á vissan hátt kannski að missa af lestinni hvað þetta varðar. Rétt eins og hv. þingmaður kom inn á er Ísland ríkt land af auðlindum. Við eigum gnægt af vatni og landi og svo erum við með gjöful fiskimið hringinn í kringum landið og við eigum hreint loft. Allt eru þetta lífsins gæði sem aðrar þjóðir öfunda okkur af og ásælni í þessi gæði mun ekki gera neitt annað en að aukast núna í framtíðinni. Við sjáum það og höfum fengið af því fregnir að það hefur verið keyrt á milli bæja eins og fyrir norðan og eins í mínu kjördæmi þar sem bændum eru boðnar háar fjárhæðir fyrir jarðir sínar. Við þekkjum líka dæmi um það, ég get t.d. nefnt Mýrdalinn og fleiri svæði þar sem útlendingar hafa keypt stóran hluta landsins, girt það af og takmarkað aðgengi okkar hinna að því. Ég vil því spyrja hv. þingmann hvort þarna sé horft til annarra landa. Hann nefndi bæði Danmörku sem og önnur ríki. Nú stöndum við frammi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um hugsanlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ef til þess kæmi gætum við verið með þessi lög sem myndu takmarka þessi jarðakaup erlendra aðila eða væri það bara bundið við aðildarríki Evrópusambandsins að mega það?