157. löggjafarþing — 131. fundur,  19. júní 2026.

frestun á fundum Alþingis.

[16:13]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Nú þegar þessu vorþingi okkar er að ljúka vil ég flytja forseta og varaforsetum bestu þakkir fyrir samstarfið á þingvetrinum og forseta hlý orð í okkar garð. Ég vil sömuleiðis þakka forseta fyrir samstarf með þingflokksformönnum sem ég geri mér grein fyrir að er ekki alltaf einfalt. Ég vil einnig þakka starfsfólki Alþingis fyrir veturinn en við þingmenn erum lánsöm að hafa aðgang að þvílíkum mannauði sem starfsfólk Alþingis er. Okkur er mætt með bros á vör og hlýju viðmóti, sama hvert verkefnið er.

Þingveturinn hefur verið nokkuð hefðbundinn í skilningi þingstarfa. Við höfum tekist á, við höfum rökrætt og verið sammála og ósammála en ég held að í rauninni sé það miklum mun meira sem sameinar okkur heldur en sundrar. Og hér á síðustu dögum þingsins þegar þreytan var farin að segja til sín var meira að segja deilt um það hvort austur væri vestur [Hlátur í þingsal.] og það síðan leiðrétt með því að þetta væri norður suður og meira að segja kom það fyrir hér í þingsal að hv. þingmaður ruglaðist á Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Degi B. Eggertssyni [Hlátur í þingsal.] þrátt fyrir að það væri eftir að hv. þm. Guðlaugur Þór fékk háryfirhalninguna. [Hlátur í þingsal.] En allt hafðist þetta þó og hér erum við í dag að ljúka þingstörfum.

Alþingi er vinnustaður, ólíkur flestum, en vinnustaður. Hér verða til vinasambönd þvert á flokka sem endast langt út fyrir kjörtímabil og sum út ævina. Slíkt er ómetanlegt.

Virðulegur forseti. Ég vil ítreka í lokin þakkir okkar þingmanna til forseta, varaforseta og starfsfólks Alþingis og óska þeim og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og bið þingmenn um að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — Þingmenn risu úr sætum.