157. löggjafarþing — 131. fundur,  19. júní 2026.

frestun á fundum Alþingis.

[16:16]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti.

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, frá 19. júní 2026 eða síðar ef nauðsyn krefur, til 8. september 2026.

Gjört á Bessastöðum, 18. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

_________________

Kristrún Frostadóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, er frestað.

Forseti. Ég vil byrja á því að taka undir góð orð hæstv. forseta hér áðan og góð og kómísk og skemmtileg orð hv. þm. Stefán Vagn Stefánssonar og þakka ykkur öllum, hv. alþingismönnum, fyrir mjög ánægjulegt samstarf í vetur. Þetta er fyrsta heila löggjafarþing þessarar ríkisstjórnar og þessa meiri hluta og það hefur gengið vel. Eins og fram hefur komið er stundum tekist á í þessum sal en hér hefur líka gengið vel í nefndum þingsins. Það er bræðra- og systralag meðal manna í slíkri vinnu og það sést bara af þeim málum sem voru afgreidd hér í dag hvað mikið er milli okkar sem einmitt sameinar okkur frekar en sundrar og við getum hér unnið mjög vel saman.

Ég vil líka þakka starfsfólki þingsins sérstaklega fyrir oft krefjandi aðstæður og vinnu á þessum stað. Hér hefur verið unnin alveg gríðarlega góð vinna og gengið vel að klára mikilvæg mál. Ég vil auðvitað þakka sérstaklega hæstv. forseta fyrir virkilega vel unnin störf hér í vetur, vor og inn í sumarið. Ég vil bara segja alveg eins og er að ég mun sakna margra ykkar, ef ekki allra, næstu vikur og mánuði. Ég held hins vegar við höfum öll gott af því, bæði okkar sjálfra vegna, fjölskyldna okkar vegna, fólksins í landinu vegna, að taka okkur nokkrar vikur í sundur, koma svo saman hér aftur í september og vera frjó þar af hugmyndum.

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs sumars og vona að forseti og allir hér inni fari vel með sig.