ávarp forseta Alþingis.
Hv. þingmenn. Ég býð ykkur öll velkomin til starfa á 158. löggjafarþingi sem nú er að hefjast og er hið þriðja á þessu kjörtímabili. Gestum Alþingis við þingsetningarathöfnina fagna ég einnig og kasta góðri kveðju á starfsfólk skrifstofu Alþingis sem mun leggjast á árarnar með okkur á komandi þingi eins og endranær.
Sumarið 2026 var tíðindasamt í pólitísku tilliti á Íslandi. Því olli að þann 29. ágúst fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort haldið skyldi áfram samningaviðræðum um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er okkur allt í fersku minni og einnig niðurstaðan, sem varð að endurvekja ekki umsóknina að svo komnu máli. Kjósendur sýndu málefninu áhuga og kjörsókn var mjög góð. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni fékkst afgerandi niðurstaða um afstöðu meiri hluta kjósenda, niðurstaða sem Alþingi ber að virða.
Umræður urðu miklar og oftast góðar og upplýsandi þótt einnig bæri því miður á rangfærslum. En hin almenna umræða bar einnig ákveðin hættumerki sem vert er að staldra við. Svo virðist, því miður, sem ofstopi og hótanir í garð forystufólks í stjórnmálum séu að verða daglegt brauð. Það vekur eftirtekt að þeir stjórnmálamenn sem helst fá að kenna á slíku framferði eru konur. Mál er að linni. Eigi lýðræðissamfélagið að standa undir nafni verða þátttakendur í opinberri umræðu, sem meðal annars fer fram í athugasemdakerfunum á vefnum, að ráða við verkefnið. Það er undir hverju og einu okkar komið að leggja til málanna á þessum vettvangi þannig að gagn sé að en ekki skaði.
Frá árinu 1992 hefur verið við lýði samstarfsvettvangur forseta þjóðþinga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, gjarnan nefndur NB8. Alþingi hélt í ágústmánuði árlegan fund þjóðþinga NB8-ríkjanna og þar var meðal annars var fjallað um stöðu stríðsins í Úkraínu og stuðning NB8-ríkjanna við baráttu úkraínsku þjóðarinnar gegn innrásarhernum sem staðið hefur yfir í vel á fimmta ár. Á sama tíma var hér staddur í opinberri heimsókn í boði forseta Alþingis Ruslan Stefanchuk, forseti þjóðþings Úkraínu, og ítrekaði forseti Alþingis við hann tvímælalausan stuðning Íslands við málstað Úkraínu og fórnarlömb stríðsins, ekki síst úkraínsk börn sem búa við öryggisleysi og styrjaldarógn í sínu daglega lífi. Samstarfið við NB8-ríkin, okkar nánustu samverkalönd, er mikilvægur vettvangur fyrir umræður um ýmis brýn málefni samtímans, svo sem notkun gervigreindar og áhrif hennar og stafrænnar tækni á hlutverk og störf þingmanna, um kynjajafnrétti og um stöðu kjörinna fulltrúa í samfélaginu, hótanir og hatursorðræðu í þeirra garð.
Þótt að mörgu sé að hyggja fyrir kjörna fulltrúa á Alþingi megum við ekki gleyma því að líta okkur nær og huga að starfsháttum hér innan húss. Starfsumhverfið á Alþingi þarf að geta breyst og þróast í takt við tímann. Á haustþinginu mun hefjast tilraun um nýtt fyrirkomulag þingvikunnar sem forseti hefur mikla trú á að geti gert þennan vinnustað betri og skilvirkari. Forseti vonar að það gangi eftir og að þingmenn beri sömu væntingar til þessa nýja skipulags og ég. Það er innleitt í tilraunaskyni nk. mánudag, stendur á haustþingi og verður svo metið að tilrauninni lokinni.
Starfshættir hér á Alþingi ráðast að miklu leyti af lögum um þingsköp Alþingis. Þau hljóta einnig að breytast í takt við nýja tækni, væntingar þingmanna um skaplegan vinnutíma og kröfur samfélagsins um skilvirkni þingsins. Í haust mun ég beita mér fyrir því að farið verði ofan í saumana á þeim breytingum sem gerðar hafa verið á þingskapalögunum á þeim rúma aldarfjórðungi sem liðinn er frá síðustu aldamótum. Kannað verður hvernig þessar breytingar hafa reynst og hvort þær þjónuðu markmiðum sínum með viðunandi hætti. Leitað verður liðsinnis ykkar, hv. þingmenn, og auðvitað þingflokka hér á Alþingi, við þessa athugun á þingsköpunum og ég bið ykkur að bregðast vel við þeirri beiðni. Verði niðurstaðan á þeirri skoðun sú að það sé áhugi á því að gera tilteknar breytingar á reglum og þingskaparlögum og vilji fyrir því hér á Alþingi til að koma slíkum breytingum til leiðar mun ég stuðla að því að endurskoðun verði hafin á þingskaparlöggjöfinni á næsta ári.
Að morgni 28. ágúst sl. lést Haraldur V. Noregskonungur í Ósló. Hann var á nítugasta aldursári. Haraldur V. ríkti í Noregi frá 17. janúar 1991 til hinsta dags. Hann var einkar vinsæll og vel látinn. Haraldur V. sótti Ísland heim, bæði meðan hann var ríkisarfi og einnig eftir að hann tók við ríki, og voru þau Haraldur konungur og Sonja drottning hér jafnan aufúsugestir. Forseti Alþingis sendir forseta Stórþingsins og þingmönnum þar, konungsfjölskyldunni og norsku þjóðinni samúðarkveðjur vegna fráfalls Haraldar V. Noregskonungs.
Þessum þingfundi verður brátt frestað og ég bið þingmenn og gesti Alþingis að þiggja veitingar í Smiðju í tilefni dagsins. Ég bið hæstv. forsætisráðherra að ganga fremstan með mér úr þingsalnum til Smiðju.