158. löggjafarþing — 1. fundur,  8. sept. 2026.

Minnst látins fyrrverandi alþingismanns, Guðmundar Karlssonar.

[15:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Guðmundur Karlsson, fyrrverandi alþingismaður, lést á Landspítalanum hér í Reykjavík 1. ágúst síðastliðinn, níræður að aldri.

Guðmundur var fæddur í Vestmannaeyjum 9. júní 1936. Foreldrar hans voru hjónin Karl Guðmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður, og Unnur Jónsdóttir húsmóðir. Guðmundur ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann hélt til náms í Menntaskólanum á Laugarvatni og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1957. Hann stundaði síðan laganám við Háskóla Íslands um tveggja ára skeið.

Guðmundur varð ungur að árum stjórnandi í fiskvinnslufyrirtækjum í heimabyggð sinni, Vestmannaeyjum. Þegar eldgosið hófst þar í janúar 1973 var Guðmundur í forystusveit þeirra sem unnu að björgunarstörfum og varð síðar framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs í Eyjum við uppbyggingu kaupstaðarins í kjölfar gossins. Á árunum 1974 og 1975 dvaldist hann í Japan við markaðsstörf á vegum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.

Guðmundur Karlsson naut trausts samferðamanna fyrir störf sín og framgöngu. Hann stefndi ekki á pólitískan frama en Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum völdu hann til framboðs, fyrst til bæjarstjórnar og síðar til Alþingis 1978–1983 sem fulltrúa sinn í Suðurlandskjördæmi. Hann sat á sex löggjafarþingum.

Við stofnun Fiskistofu haustið 1992 varð Guðmundur forstöðumaður veiðieftirlits stofnunarinnar fram til starfsloka sinna árið 2006.

Ég bið þingheim að minnast Guðmundar Karlssonar, fyrrverandi alþingismanns, með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]