tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.
Til næsta fundar verður boðað með dagskrá. Hann verður annað kvöld, miðvikudaginn 9. september og hefst kl. 19:40. Þá flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, sbr. 62, gr. þingskapa, og fram fara umræður um hana.
Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verða tvær og verður ræðutími sex mínútur í hvorri umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu. Þingmaður utan þingflokka talar í lok fyrri umferðar og hefur fimm mínútur. Umræðunni verður útvarpað og sjónvarpað.