Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa sex mínútur í fyrri umferð og í seinni umferð hafa þingflokkarnir einnig sex mínútur hver. Þingmaður utan þingflokka talar í lok fyrri umferðar og hefur fimm mínútur.
Röð flokkanna er í báðum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Framsóknarflokkur.
Ræðumenn fyrir Samfylkinguna verða Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í fyrri umferð og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í seinni umferð.
Fyrir Sjálfstæðisflokk tala Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurk., í fyrri umferð og í seinni umferð Jens Garðar Helgason, 3. þm. Norðaust.
Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrri umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í þeirri seinni.
Ræðumenn Miðflokksins verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust., í fyrri umferð og Bergþór Ólason, 4. þm. Suðvest., í seinni umferð.
Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í fyrri umferð og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í seinni umferð.
Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrri umferð Stefán Vagn Stefánsson, 5. þm. Norðvest., og í seinni umferð Þórarinn Ingi Pétursson, 10. þm. Norðaust.