Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Það skiptir máli hvernig við í stjórnmálunum bregðumst við, bæði þegar vilji okkar nær fram að ganga en líka þegar hann gerir það ekki. Íslenska þjóðin tók ákvörðun. Meiri hluti kjósenda sagði nei við því að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið að nýju og við virðum þá niðurstöðu. Og hvað var ríkisstjórnin að gera? Ríkisstjórnin, leidd af þremur konum, efndi loforð, reyndar loforð sem fyrri ríkisstjórn sveik. Við stóðum við okkar. Þjóðaratkvæðagreiðslan snerist ekki um það hvernig Ísland á að vera. Sú trú að Ísland eigi að vera frjálslynt og umbótasinnað Evrópuríki er jafn gild í dag og hún var fyrir kosningarnar. Og við þau sem fögnuðu sérstaklega niðurstöðunni erlendis; Le Pen, Farage og Salvini og þingmenn AfD, öfgaflokksins í Þýskalandi, sem eru reyndar skoðanasystkini sumra ákveðinna stjórnarandstöðuþingmanna hér inni, vil ég segja: Þið fáið ekki að skilgreina fyrir hvað íslenska þjóðin stendur. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar breytir hvorki gildum okkar Íslendinga né áratugautanríkisstefnu okkar. Ísland mun áfram standa með alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Við munum áfram beita rödd okkar í þágu jafnréttis fyrir minnihlutahópa og afneitun loftslagsbreytinga er ekki á dagskrá. Við stöndum áfram staðfastlega með Úkraínu og rétt eins og ég sagði áðan, nákvæmlega, við Selenskí forseta á fundi mínum, löngum og góðum, í Keflavík: Ísland stendur með Úkraínu. Að sjálfsögðu stendur Ísland með Grænlandi þótt fyrrum pótintátar þessa lands vilji að við liggjum lágt. En ekki síst þá stöndum við með sjálfum okkur sem sjálfstæð og fullvalda þjóð og það eru skýr skilaboð til umheimsins. Og vel að merkja: Við erum áfram hluti af hinni evrópsku fjölskyldu.
Virðulegi forseti. Þjóðaratkvæðagreiðslan var stórt mál, stórt almannahagsmunamál, í takt við grunnstef Viðreisnar um að almannahagsmunir séu settir framar sérhagsmunum. Fyrst samningaviðræður við Evrópusambandið eru ekki sú leið sem þjóðin vill fara verðum við að sjálfsögðu að ná markmiðum okkar með öðrum hætti. Við þurfum að styrkja stöðu Íslands í Evrópu og efla enn frekar samstarfið við okkar nánu vinaríki eins og Noreg, eins og Bretland og líka Kanada. Geta þessar þjóðir til að mynda sameinast í hagsmunagæslu við Evrópusambandið, svo dæmi séu tekin? Svo ræktum við að sjálfsögðu sterk tengsl áfram vestur um haf og horfum líka til Asíu því að við þurfum stöðugra efnahagslíf svo íslensk heimili þurfi ekki alltaf að borga hæstu vextina og lifa við mestu verðbólguna. Við þurfum aukna og heilbrigða samkeppni svo fólkið okkar fái meira fyrir peningana sína. Við þurfum að tryggja atvinnulífinu greiðan aðgang að mörkuðum og skapa ný tækifæri fyrir íslenskan útflutning. Þar gegnir EES-samningurinn, okkar mikilvægasti viðskiptasamningur, lykilhlutverki. Það gleður mig sérstaklega að heyra hversu einlæg og hversu djúp ást stjórnarandstöðunnar er nú orðin á samningnum. Ég geri ráð fyrir því að þessari miklu þverpólitísku samstöðu fylgi einmitt ábyrgð, því að EES-samningurinn er ekki eins og hver annar konfektkassi, alls ekki. Við þurfum að standa við okkar hlut og hætta að nálgast hann af pólitískri tækifærismennsku og hentistefnu. Við þurfum að efla hagsmunagæslu Íslands, opna nýja markaði og leita nýrra tækifæra. Ég hef þess vegna ákveðið að skipa spretthóp til að kortleggja hagsmunagæslu okkar og ný viðskiptatækifæri Íslands. Ég hef þegar rætt við atvinnulífið vegna þessa og við ætlum að taka höndum saman. Utanríkisstefna Íslands verður áfram rekin í þágu íslenskra hagsmuna. Sem utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar ætla ég ekki að taka ákvarðanir til heimabrúks sem þrengja að framtíðarvalkosti landsins, hvorki þegar kemur að viðskiptum né varnar- og öryggismálum í breyttum heimi.
Frú forseti. Viðreisn kom inn í íslensk stjórnmál til að setja almannahagsmuni framar sérhagsmunum. Við erum stjórnmálaafl sem sættir sig ekki við að svona hafi þetta bara alltaf verið: Það má ekki rugga bátnum, bara alls ekki. Við trúum á frelsi einstaklingsins, ábyrg ríkisfjármál, öfluga velferð, jafnrétti, frjáls viðskipti og heilbrigða samkeppni. En það er ekki nóg að bara trúa; við í Viðreisn þorum líka að taka ákvarðanir og framkvæma. Það er alveg ljóst að sjaldan eða aldrei hefur verið meiri þörf fyrir frjálslynt og umbótasinnað stjórnmálaafl í heimi vaxandi öfga og afturhalds. Ég fagna því að nú sé að skapast breið samstaða um að náttúruauðlindir Íslands séu sameign þjóðarinnar og ég býst ekki við öðru en breiðum stuðningi við afgerandi auðlindaákvæði í stjórnarskrá í þágu þjóðarinnar okkar. Það er ekki tilviljun að ríkisstjórn með Viðreisn innan borðs taki þetta skref. Þjóðareign þarf líka að fylgja gegnsæi og sú sjálfsagða krafa að almenningur, fólkið okkar, viti hverjir það eru sem fara með réttinn til að nýta sameiginlegar auðlindir okkar og hvert verðmætasköpunin rennur. Þess vegna verður einnig varpað skýrara ljósi á eignarhald og tengsl í sjávarútvegi, bæði innlend og erlend, með frumvarpi atvinnuvegaráðherra í vetur. Það er hlutverk stjórnmálanna, eins og ég sé þau, að treysta markaðnum en gæta þess að hann sé opinn öllum, að standa með atvinnulífinu en ekki sérhagsmununum, að vernda eignarrétt en muna ávallt að sameiginlegar auðlindir eru sameign þjóðarinnar, að einfalda kerfin í stað þess að þenja þau út, að sjá til þess að samfélag okkar sé öruggt með öflugri lögreglu og traustu áfallaþoli.
Virðulegi forseti. Við höldum áfram því að verkefnin bíða ekki. Heimili og fjölskyldur þrá lægri vexti og meiri fyrirsjáanleika. Börn þurfa betri þjónustu. Ungt fólk vill geta séð framtíð sína á Íslandi. Fyrirtæki þurfa orku, samkeppnishæfni og einfaldara regluverk. Og í óvissum heimi þurfum við að standa fast á gildum okkar, efla bandalögin okkar og gæta íslenskra hagsmuna. Þar liggur pólitíkin næstu ár. Ríkisstjórnin, þessi samstiga ríkisstjórn, mun standa vörð um frjáls viðskipti til að bæta lífskjör fólks. Við munum styrkja varnir og styrkja öryggi Íslands og alþjóðlegt samstarf. Við munum standa með mannréttindum, frelsi og lýðræði. Nú hefst næsti kafli og við erum tilbúin.