Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Góðir landsmenn. Þetta er nú meira ástandið. Það er ekki eitt, það er allt. Ólíkt þeirri mynd sem hefur verið dregin upp hér af forystumönnum ríkisstjórnarinnar gengur ekkert upp hjá þessari ríkisstjórn. Hún lét kjósa sig út á það að hún ætlaði að berja niður vexti og verðbólgu en var ekki fyrr tekin við en hún hóf aðgerðir sem stuðluðu að því að auka álögur á almenning, hindra verðmætasköpun í landinu og auka vexti og verðbólgu. Svo komu fjárlög þessa árs sem nú er að líða og þau báru þess skýrt merki að ríkisstjórnin bæri afskaplega lítið skynbragð á það hvernig hagkerfi landsins virkar, hvernig fyrirtækin og heimilin í þessu landi virka. Þar voru áfram teknar ákvarðanir sem færðu samfélagið í ranga átt miðað við það sem lagt var upp með.
Svo bar svo við fyrr á þessu ári að forystumenn ríkisstjórnarinnar ákváðu að boða til blaðamannafundar til að tilkynna um uppgjöf sína; sleggjan hafði verið lögð til hliðar. Nú þyrftum við að leita til Evrópusambandsins og athuga hvort það gæti lækkað fyrir okkur vexti og verðbólgu. Þetta var reyndar kynnt á alveg einstaklega sérkennilegan hátt, þann hátt að ólíkt öðrum löndum þá fælist umsókn Íslendinga um að komast í Evrópusambandið ekki um viljann til að ganga í Evrópusambandið heldur að leita tilboða. Og af stað var farið með þessa aðferð. En þegar gönuhlaupið var runnið út í sandinn voru viðbrögð stjórnarherranna eða -frúnna ekki mörkuð auðmýkt eða skilningi á afstöðu þjóðarinnar. Allt tal um að virða vilja þjóðarinnar hvarf eins og dögg fyrir sólu við sólarupprás sunnudaginn 30. ágúst. Þá var ekki lengur rætt um að virða vilja þjóðarinnar. Það kvað við nýjan tón, svekkelsistón en líka reiðitón. Allt í einu átti EES-samningurinn að verða einhvers konar refsivöndur. Þess skyldi hefnt frá Brussel sem hallaðist á Íslandi og sérlausn Íslendinga í EES-samningnum skyldi afnema sem fyrst til að tryggja að lög sem eru samin af embættismönnum í Brussel verði æðri þeim lögum sem verða til hér á Alþingi.
Ekki var reiðilesturinn fyrr búinn en ríkisstjórnin kynnti fjárlög næsta árs, fjárlög sem voru fyrst og fremst áminning um uppgjöfina en líka til þess fallin að sýna landsmönnum að þessi ríkisstjórn getur ekki lært af reynslunni. Það var meira af því sama, meira af því sama og hafði skapað vandann; hærri skattar, hærri bankaskattar til að hækka vexti, minni endurgreiðsla virðisaukaskatts af byggingarframkvæmdum til að hækka fasteignaverð, auknar álögur á atvinnulífið sem dregur úr verðmætasköpun og auknar álögur á allan almenning, hækkun hins nýja kílómetragjalds, því að það er aldrei hægt að leggja of mikið á fólk sem þarf að komast leiðar sinnar. Og, jú, svo voru það allar gjaldahækkanirnar sem eru áformaðar, 5,2% yfir línuna til að gefa merki um það að lágmark verðbólgu á nýja árinu verði 5,2% — skilaboð ríkisins, þessarar ríkisstjórnar.
Ríkisstjórnin efndi til átaka og klofnings í samfélaginu. Forsætisráðherra sagði hér áðan: Loforð gefið, loforð efnt. Ekki loforð til þjóðarinnar, ekki loforð fyrir kosningar. Nei, hún var plötuð, þrátt fyrir að forsætisráðherrann hafi látið fylgja sögunni að það mætti ekki plata. Nei, þetta var loforð eins eða tveggja formanna stjórnmálaflokka til hins þriðja til að ná völdum. Og jú, það loforð var efnt og við sitjum uppi með afleiðingarnar af því. En við getum efnt loforðin, raunverulegu loforðin, og komið til móts við væntingar þjóðarinnar. Við getum komið til móts við 53% og 47%. Við getum varið fullveldið og notað það til að bæta hag allra landsmanna. Það hefur verið gert áður og það er hægt að gera það aftur. Það er hægt að ná tökum á ríkisrekstrinum án þess að hækka stöðugt álögur á almenning. Það er hægt að efla verðmætasköpun í samfélaginu og það er hægt að ná niður vöxtum og verðbólgu, en til þess þarf nýja ríkisstjórn.