Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Frú forseti. Góðir Íslendingar. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins fyrir um áratug bárust mér fregnir af því að 9,1% barnanna okkar byggju við mismikla fátækt. Þar og þá á eldhúsgólfinu heima ákvað ég að stofna stjórnmálaflokk til að berjast gegn fátækt og réttlátara samfélagi fyrir alla. Þannig varð Flokkur fólksins til. Við gleymum því oft að á bak við hverja einustu tölu, hverja einustu krónu í fjárlögum er manneskja. Þar er eldri borgarinn sem byggði upp þetta land en þarf að velja á milli þess að leysa út lyfin sín eða eiga mat á diskinn. Þar er öryrkinn sem mætir lokuðum dyrum og fordómum í kerfi sem átti að grípa hann. Þar er einstæða foreldrið sem og láglaunaeinstaklingurinn sem vinnur myrkranna á milli en nær ekki endum saman.
Hér hef ég staðið í æðsta ræðustóli landsins í níu ár og ég hef helgað líf mitt því að vera baráttuandi og rödd þeirra sem hafa verið sett hjá garði og þurft að berjast fyrir tilveru sinni hvern einasta dag. Það var traust ykkar og trú sem varð til þess að hér stend ég í dag sem ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Eftir tæp tvö ár í ríkisstjórn horfi ég stolt á verkin sem við erum að vinna fyrir þá sem mest þurfa á okkur að halda. Fólkið fyrst, svo allt hitt.
Eitt stærsta baráttumál Flokks fólksins var að stöðva hið hróplega óréttlæti viðvarandi kjaragliðnunar almannatrygginga. Ár eftir ár drógust aldraðir og öryrkjar stöðugt aftur úr launaþróun í landinu. Nú er þeim óréttlætiskafla lokið og samhent ríkisstjórn ykkar hefur bundið enda á þá skömm. Frá og með 1. janúar nk. fylgja greiðslur almannatrygginga launavísitölu. Aldrei hafa kjör þessara viðkvæmu hópa batnað sem nú. Loksins, loksins hefur okkur auðnast sú gifta að hafa tryggt öryrkjum og eldra fólki ígildi þess að sitja við kjaraborðið. Það er alltaf jafn dapurlegt að sjá að til séu þeir kjörnu fulltrúar í þessum sal sem rísa upp á afturlappirnar og mótmæla harðlega þessari kjarabót til eldra fólks og öryrkja. Á sama tíma verja þau hin sömu með kjafti og klóm milljarðagróða þeirra ofurríku sem aldrei má snerta. Hvers konar samfélag er það sem státar af auðlegð og jöfnuði en á sama tíma hefur ekki efni á réttlæti fyrir alla?
Árum saman barðist Flokkur fólksins í stjórnarandstöðu fyrir lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Nú í samhentri ríkisstjórn hefur samningurinn verið lögfestur með allri þeirri réttarvernd sem hann veitir fötluðum. Við höfum hækkað og erum enn að hækka almennt frítekjumark eldra fólks og höfum tryggt tekjulægstu hópunum skatta- og skerðingalausan jólabónus.
Kæra þjóð. Eitt mikilvægasta verkefni sem ég hef tekið að mér er þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila um land allt. Á fimm ára tíma framkvæmdaáætlunar eru 1.507 hjúkrunarrými, þar af tæplega 1.400 ný, akkúrat núna komin í framkvæmd. Það jafngildir hvorki meira né minna en 45% fjölgun hjúkrunarrýma á landsvísu. Til samanburðar fjölgaði hjúkrunarrýmum um einungis 69 á fimm árum síðustu ríkisstjórnar. Algjört úrræðaleysi ríkti í málaflokknum með þeim alvarlegu afleiðingum sem því fylgdi. Við munum eyða öllum biðlistum eldra fólks eftir öryggi og umönnun og stuðla þannig að því að elsta kynslóðin okkar muni eiga áhyggjulaust ævikvöld.
Mikill útskriftarvandi hefur verið á Landspítala, háskólasjúkrahúsi, en vegna aðgerða okkar hefur vandinn ekki verið minni um margra ára skeið. Nú dvelja þar um 50 aldraðir einstaklingar, þar af hluti sem ekki er tilbúinn til útskriftar og þarf á áframhaldandi sjúkrahúsþjónustu að halda. Fyrr á árinu og á undangengnum árum hefur þessi tala verið vel á annað hundrað aldraðra sem ekki hafa fengið búsetu og umönnun við hæfi og mátt þola að vera nefndir fráflæðisvandi í heilbrigðiskerfinu.
Góðir Íslendingar. Í sumar lauk stærstu og verðmætustu strandveiðivertíð frá upphafi. Flokkur fólksins hefur barist ötullega fyrir brothættustu byggðir landsins og fyrir auknu frelsi til strandveiða. Með auknu frelsi fær þjóðin greiðari aðgang að sameiginlegri sjávarauðlind sinni. Síðastliðið vor var samþykkt fyrsta samgönguáætlun frá því á árinu 2020. Þar eru boðaðar stórauknar viðhaldsaðgerðir með tilheyrandi auknu fjármagni. Við ætlum líka að byrja á að bora göng á næsta ári. Ég legg ekki meira á ykkur.
Við erum að taka landamærin föstum tökum og við heyjum harða og nauðsynlega baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Öryggi borgaranna verður alltaf í fyrirrúmi og við munum hvergi hvika frá því að verja samfélagið okkar með öllum tiltækum ráðum gegn allri ógn sem að okkur kann að steðja.
Kæru Íslendingar. Þegar kemur að mennta- og barnamálum höfum við þurft að horfast í augu við gríðarstórar áskoranir. Við getum ekki og við munum ekki sætta okkur við að stór hópur barna ljúki grunnskóla án þess að geta lesið sér til gagns. Við getum ekki sætt okkur við að vera enn á ný í fallsæti PISA-kannana. Við getum ekki sætt okkur við að framtíðartækifæri barna okkar ráðist af því í hvaða póstnúmeri þau búa eða hver staða foreldra þeirra er. Kerfinu þarf að breyta og kerfinu verður breytt. Við ætlum að einfalda aðalnámskrá með aukinni áherslu á kjarnagreinar eins og lestur, íslensku og stærðfræði. Við höfum jafnframt hafið stórsókn í útgáfu námsgagna til að létta undir með okkar frábæru kennurum sem þurfa aukinn stuðning, meiri sérhæfingu og skilvirkari starfsþróun. Í fyrsta sinn höfum við birt einkunnir eftir skólum til að geta greint vandann og tryggt aðstoð nákvæmlega þar sem hennar er mest þörf. Í fyrsta sinn leggjum við fyrir samræmd stöðupróf. Í fyrsta sinn höfum við sett lög um miðlægan nemendagrunn og setjum nú í vetur fyrstu ungmennastefnu landsins. Í fyrsta sinn höfum við sett samræmdar reglur um símafrið í skólum og munum stíga það mikilvæga skref að hækka aldurstakmörk á samfélagsmiðlum til að vernda andlega heilsu ungmennanna okkar. Í fyrsta sinn er áhersla á raungreinar tryggð, sérstaklega í atvinnustefnu stjórnvalda, og í fyrsta sinn í langan tíma er farið í raunverulegt stórátak í uppbyggingu verknámsskóla um allt land.
Við erum einnig að innleiða tölustafi aftur í einkunnagjöf til að tryggja jafnræði og skýrara námsmat. Fram undan eru síðan mestu breytingar á barnaverndarlögum í tuttugu ár, nýtt meðferðarheimili í Garðabæ og fyrsta heildstæða aðgerðaáætlun Íslands gegn fátækt barna. Málin verða vart stærri en svo.
Kæra þjóð. Það er ósköp auðvelt að standa í ræðustóli og þykjast vera vinur öryrkja, eldra fólks, barna og fátækra þegar kosningar nálgast. Orð eru ódýr og loforðin fljót að gleymast en raunverulega prófraunin kemur þegar stjórnmálamenn þurfa að velja á milli þeirra sem eiga sterka og háværa hagsmunagæslu og þeirra sem enga eiga. Flokkur fólksins þekkir sitt erindi. Við erum ekki komin hingað til að þjóna einhverri valdaelítu eða gæta að sérhagsmunum útvalinna. Við skuldum engri elítu neitt. Við skuldum fólkinu í landinu allt. Í því felst okkar mesta frelsi, frelsi til að segja sannleikann, standa fast á okkar hugsjónum og berjast af heilindum fyrir því sem er rétt. Við höfum áorkað miklu á stuttum tíma en við erum rétt að byrja. Fólkið fyrst og svo allt hitt.