Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegur forseti. Nú eru tvö ár liðin frá því að ríkisstjórnin tók til starfa, verkstjórn hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur og valkyrjanna. Því er þetta góður tímapunktur til að líta til baka og skoða verk hinnar svokölluðu verkstjórnar.
Fyrir síðustu kosningar vantaði ekki loforðin eða slagorðin. Flest af því hefur elst mjög illa, svo vægt sé til orða tekið. Það átti að berja niður vextina og verðbólgu með hinni frægu sleggju. En viti menn, verðbólgan er á uppleið. Verðbólguvæntingar eru enn mjög háar og hækkuðu reyndar eftir framlagningu fjárlaga ríkisstjórnarinnar. Og vextirnir: Já, virðulegur forseti, vextirnir hafa hækkað og hækkað og standa nú í 8%. Ríkisstjórnin virðist vera þess vanmáttug að valda því verkefni sem hún var kosin út á; verkefni sem hún lagði höfuðáherslu á fyrir kosningar, verkefni sem þjóðin treysti henni fyrir, verkefni sem hún gleymdi og fór í annað.
Í nýútkomnu fjárlagafrumvarpi kveður við sama tón, sama stef og áður, þrátt fyrir að öllum ætti að vera ljóst að aðferðafræði ríkisstjórnarinnar mun ekki gagnast í baráttunni við vexti og verðbólgu. Aðferðafræðin, sem var gagnrýnd hér á Alþingi af atvinnulífinu og verkalýðshreyfingunni, að hækka skatta og gjöld langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn sjálfur hefur bent á það margoft við sínar vaxtaákvarðanir að einn stór þáttur í því að vextir séu hækkaðir séu hækkanir hjá hinu opinbera. Þar dró ríkisstjórnin vagninn í síðustu fjárlögum með 3,2% hækkun krónutölugjalda og bætir nú í með 5,2% hækkun sömu gjalda.
Hvernig menn fá það út að þetta muni ganga með enn meiri hækkun er ráðgáta, virðulegur forseti. En ef það væru bara hækkanir á krónutölugjöldum sem þessi ríkisstjórn ætlaði að skella á almenning og koma fram í fjárlögum væri maður mögulega aðeins rólegri. En nei, kílómetragjaldið mun hækka um 4 milljarða sem leggst ofan á þá rúmlega þrjá milljarða sem var hækkun síðasta árs. Það þýðir að í raun eru auknar álögur á bifreiðaeigendur í nýju kerfi orðnar rúmir 7 milljarðar. Við megum ekki gleyma 7,5 milljarða kr. hækkuninni út af vörugjöldum á ökutæki sem var samþykkt um síðustu áramót.
Virðulegur forseti. Þetta eru svakalegar upphæðir. Ef við hugsum til ferðaþjónustunnar: 9 milljarða kr. hækkun gjalda á ferðaþjónustuna er um helmingur af hagnaði greinarinnar á síðasta ári og mun klárlega ekki styðja við þá mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er fyrir okkur Íslendinga. Þvert á móti. Alls eru á milli 20 og 30 milljarða kr. skattahækkanir boðaðar í fjárlögum næsta árs. Hvert heldur hæstv. ríkisstjórn að þessar hækkanir muni fara annað en út í verðlag og enda á borðum heimila og fyrirtækja í landinu?
Hallalaus fjárlög, sama hvað þau kosta, virðulegur forseti. Þetta voru orð hæstv. forsætisráðherra hér í þinginu í vor: Hallalaus fjárlög, hvað sem þau kosta. Og þessi fjárlög kosta of mikið. Þetta er röng aðferðafræði og ríkisstjórnin er á rangri leið. Hver man ekki eftir verðmætasköpunarhaustinu? Ekkert gerðist og nú er aftur komið haust og það er farið að kólna; ekki bara í veðri heldur einnig í efnahag þjóðarinnar. Atvinnuleysið er á uppleið, hagvöxtur á niðurleið og forsenduákvæði kjarasamninga er brostið. En hvernig komumst við þangað? Jú, með röngum ákvörðunum, rangri forgangsröðun og ráðaleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Því miður var fókusinn annars staðar og því sitjum við uppi með tvö glötuð ár og verri stöðu en lagt var af stað með.
Virðulegur forseti. Þann 29. ágúst hafnaði þjóðin áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Við í Framsókn studdum þjóðaratkvæðagreiðslu enda treystum við þjóðinni. Þjóðin var spurð og meiri hlutinn sagði nei. Næsta verkefni Alþingis hlýtur því að vera að draga umsóknina formlega til baka og loka þar með þessu máli. Stjórnskipulega er það mjög mikilvægt að ekki leiki vafi á því hver niðurstaðan varð og hver þjóðarviljinn sé og hann sé virtur.
Það er kominn tími á þjóðarsátt. Framsóknarflokkurinn er reiðubúinn til samstarfs í vetur. Við höfum lagt fram tillögur í efnahagsmálum og munum halda því áfram. Sá tími sem fór í deilur um aðildarviðræður við Evrópusambandið er liðinn. Nú taka við verkefni vetrarins; heilbrigðisþjónustan sem þarf að styrkja, fjölskyldur sem þurfa svigrúm, fyrirtæki sem þurfa að geta fjárfest og sótt fram og menntun sem þarf að taka föstum tökum. Kjarni málsins er einfaldur, virðulegur forseti: Við eigum og getum náð mun betri árangri. En þá þarf forgangsröðunin að vera skýr og fjármunirnir að nýtast þar sem þeirra er mest þörf. Niðurstaðan af þessu öllu, virðulegur forseti, er því miður sú að ríkisstjórnin fær falleinkunn í hagstjórn. Í stað þess að fara Framsóknarleiðina með áherslu á vinnu, vöxt og velferð blasir við önnur niðurstaða: Ríkisstjórn sem hefur því miður valið að fara leið skatta, samdráttar og skerðingar.