Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Við myndun ríkisstjórnarinnar sagði formaður Viðreisnar skýrt, með leyfi forseta:
„Ég vil taka það fram í þessu samhengi líka, við ætlum ekki að hækka tekjuskatta á fólk, við ætlum ekki að hækka skatta á lögaðila, við ætlum ekki að hækka fjármagnstekjuskatta og við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.“
Þetta voru ekki óljós orð. Þau voru ekki sögð í hálfkæringi. Þetta voru loforð við fólk, venjulegt fólk, og fyrirtækin í landinu. En hvað hefur dunið á landsmönnum frá því að þessi ríkisstjórn tók við? Skattahækkanir, skattahækkanir og aftur skattahækkanir. Loforðin hafa verið svikin. Ríkisstjórnin talar um mikilvægi þess að leggja fram hallalaus fjárlög. Um það getum við verið sammála en það eru aðrar og betri leiðir til þess. Það þarf ekki ætíð að ætlast til að almennir borgarar herði sultarólina. Ríkið getur líka gert það og miklu frekar heldur en heimilin. Spurningin á ekki að vera: Hvern getum við rukkað meira? Fyrsta spurning ábyrgra stjórnmálamanna á að vera: Hvar getum við farið betur með fé? Hvernig minnkum við umsvif ríkisins? Í síðustu fjárlögum hækkuðu skattar og gjöld á heimilin og fyrirtækin í landinu um 30 milljarða. Þrátt fyrir varnaðarorð okkar hélt ríkisstjórnin ótrauð áfram. Og hvað gerðist? Verðbólgan fór á flug, atvinnuleysi jókst og vextir hækkuðu.
Virðulegur forseti. Það er fjölskyldan sem greiðir nú hærri vexti af íbúðinni sinni. Það er iðnaðarmaðurinn sem sér verkefnunum fækka. Það herðir að hjá ferðaþjónustufyrirtækinu úti á landi sem hefur fjárfest, skapað störf og byggt upp þjónustu þar sem áður var jafnvel lítið atvinnuframboð. Já, loforðin hafa verið svikin.
Verst er að þessi ríkisstjórn hefur ekkert lært. Formaður Flokks fólksins er enn þá með Visa-kortið og er hvergi hætt að eyða um efni fram, af annarra manna fé. Nú á að hækka skatta og gjöld um 34 milljarða til viðbótar við þá 30 milljarða sem voru lagðir á þjóðina fyrir tæpu ári síðan. Enn eru loforðin svikin. Ferðaþjónustan fær yfir 11 milljarða í nýjar álögur, byggingariðnaðurinn auknar byrðar og einstaklingar greiða hærri skatta. Sjúklingar borga meira og hækkun bankaskatts mun þrýsta upp vöxtum. Enginn sleppur og allra síst venjulega fólkið sem ríkisstjórnin ætlaði að hlífa.
Því kemur það ekkert á óvart að 85% þeirra sem tóku afstöðu treysti ekki ríkisstjórninni til að ná tökum á efnahagsmálunum. Það er mér til efs að nokkur ríkisstjórn í lýðveldissögunni hafi fengið annan eins áfellisdóm frá þjóðinni. En þetta er ekki eini dómur þjóðarinnar yfir verkum og stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Ríkisstjórnarflokkarnir guldu afhroð í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hraðaupphlaup hæstv. utanríkisráðherra í að koma þjóðinni í Evrópusambandið endaði með óverjandi skoti í eigið mark.
Kæru landsmenn. Ríkisstjórnin skreytir sig með verkum sem hvíla á því að leggja þyngri og þyngri byrðar á hinn vinnandi mann. Um slíka stjórn komst skáldið góða frá Fagraskógi ágætlega að orði:
Löggjafar, sem lítið skilja,
lúta aldrei fólksins vilja,
koma öllu á vonarvöl.
Verða sjálfir – þjóðarböl.