158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

mannabreytingar í nefndum.

[10:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Framsóknarflokksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Ingibjörg Isaksen taki sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Stefáns Vagns Stefánssonar, en Stefán Vagn Stefánsson verði varamaður í sömu nefnd í stað Sigurðar Inga Jóhannssonar. Einnig að Þórarinn Ingi Pétursson taki sæti sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Höllu Hrundar Logadóttur og Stefán Vagn Stefánsson taki sæti sem varamaður í sömu nefnd í stað Þórarins Inga Péturssonar. Þá taki Ingibjörg Isaksen sæti sem varamaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Sigurðar Inga Jóhannssonar. Einnig að Þórarinn Ingi Pétursson taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Ingibjargar Isaksen og Sigurður Ingi Jóhannsson taki sæti sem varamaður í sömu nefnd í stað Þórarins Inga Péturssonar.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu.