fjárlög 2027.
Tekið er fyrir eina dagskrármálið, fjárlög 2027, stjórnarfrumvarp, 1. mál, þskj. 1, 1. umræða. Samið hefur verið um fyrirkomulag umræðunnar. Að lokinni framsöguræðu fjármála- og efnahagsráðherra gefst talsmönnum allra þingflokka kostur á að taka til máls. Almenn umræða fer fram eftir ræður talsmanna þar til um kl. 18 þegar fagráðherrar taka þátt í umræðum um einstaka málaflokka. Á morgun munu umræður fagráðherra um einstaka málaflokka einnig halda áfram og eftir það heldur almenn umræða um fjárlagafrumvarpið áfram ef þörf krefur.