158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027. Frumvarpið byggir á grunni fjármálaáætlunar fyrir árin 2027–2031 sem Alþingi samþykkti í júní. Óhætt er að segja að það marki tímamót á þeirri vegferð sem ríkisstjórnin ákvað að hefja strax við upphaf kjörtímabilsins — að ná jafnvægi í ríkisfjármálum með hallalausum fjárlögum. Loks er okkur að takast að binda enda á langvinnan hallarekstur ríkissjóðs og í fyrsta sinn í nær áratug er gert ráð fyrir jákvæðri afkomu af rekstri hans. Þetta er mikilvægur áfangi en alls ekki endastöð. Verkefnið sem tekur við er að halda jafnvægi, bæta bæði afkomu og lánsfjárjöfnuð ríkissjóðs enn frekar og skapa skilyrði fyrir því að skuldahlutfall ríkisins taki að lækka á komandi árum. Það er hins vegar ekki nóg að afgreiða hallalaus fjárlög á Alþingi. Það verður að fylgja því fast eftir að rekstur ríkisins verði í rauninni hallalaus þegar árið verður gert upp. Fjárlögin verða að vera raunsæ. Halda þarf fast í taumana. Reynslan segir okkur að taumhaldið hefur nær alla tíð gengið erfiðlega og hér verður að gera bragarbót. Allir ráðherrar og forstöðumenn ríkisstofnana bera ábyrgð á að halda fjárútlátum innan heimilda. Þá ábyrgð verða þeir að taka alvarlega.

Forseti. Stöðugleiki næst ekki án jafnvægis. Hallalaus fjárlög draga úr lánsfjárþörf ríkissjóðs, styðja við peningastefnu Seðlabankans og skapa traustar forsendur fyrir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Það er eitt brýnasta hagsmunamál heimila og fyrirtækja í landinu. Náist árangur þar hríslast hann um allt hagkerfið. Jafnvægi í ríkisrekstrinum er líka forsenda þess að geta veitt góða opinbera þjónustu. Þegar tekjur og útgjöld eru í jafnvægi skapast svigrúm til að standa undir velferðarþjónustu, fjárfesta í innviðum og mæta óvæntum áföllum án þess að reikningnum sé velt yfir á komandi kynslóðir. Áherslurnar eru skýrar: hóflegur útgjaldavöxtur, traustir tekjustofnar, einfaldari og skilvirkari ríkisrekstur og skýr forgangsröðun í þágu verðmætasköpunar, velferðar og öryggis.

Forseti. Undirstöður íslensks efnahagslífs eru traustar. Kaupmáttur hefur aukist hjá öllum tekjuhópum og atvinnuþátttaka er mikil. Erlend staða þjóðarbúsins er sterk og skuldir hins opinbera eru hóflegar í alþjóðlegum samanburði. Hagvöxtur hefur á hinn bóginn verið hægur um þriggja ára skeið. Þróunin á vinnumarkaði er áhyggjuefni. Þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands, sem frumvarpið byggir á, gerir ráð fyrir 1,6% hagvexti á þessu ári og 1,8% hagvexti á því næsta. Verðbólga er enn of mikil og þrálátari en vonir stóðu til. Hið jákvæða er þó að mikilvægir undirliggjandi þættir hafa þróast í rétta átt. Verðhækkanir eru ekki jafn víðtækar og áður. Launaskrið hefur minnkað og aukið framboð húsnæðis hefur dregið úr verðhækkunum á íbúðamarkaði. Undirliggjandi verðbólga er talsvert minni en mæld verðbólga. Þjóðhagsspáin gerir ráð fyrir að verðbólga taki að lækka í upphafi næsta árs og verði að meðaltali 3,6% árið 2027. Ef rétt er haldið á spilum geta vextir lækkað í sama takti í kjölfarið.

Forseti. Ríkissjóður hefur verið rekinn samfellt með halla frá árinu 2019. Samanlagður halli áranna 2019–2026 er áætlaður 866 milljarðar kr. Á yfirstandandi ári er útlit fyrir 67,5 milljarða halla, eða 1,3% af vergri landsframleiðslu. Nú verður þeirri þróun snúið við. Á árinu 2027 er gert ráð fyrir tæplega 5 milljarða kr. afgangi sem samsvarar 0,1% af vergri landsframleiðslu en afkomubatinn milli ára nemur rúmlega 72 milljörðum kr. Undirliggjandi rekstur ríkissjóðs styrkist jafnframt verulega. Frumjöfnuður, þ.e. afkoma án vaxtatekna og vaxtagjalda, verður samkvæmt frumvarpinu jákvæður um 99 milljarða kr., eða 1,8% af vergri landsframleiðslu. Vaxtagjöld ríkisins eru áætluð um 155 milljarðar kr. á næsta ári. Um þriðjung þeirra má rekja til verðbóta verðtryggðra lána. Þung vaxtabyrði ríkissjóðs undirstrikar hvers vegna það skiptir máli að stöðva skuldasöfnun, ná verðbólgu niður og draga úr vægi verðtryggingar í hagkerfinu. Þegar tekst að ná vaxtabyrðinni niður svo um munar léttir það á ríkissjóði og skapar svigrúm til góðra verka. Skuldir ríkissjóðs, samkvæmt mælikvarða skuldareglu laga um opinber fjármál, verða um 2.100 milljarðar kr. í lok næsta árs, eða tæplega 38% af vergri landsframleiðslu. Hlutfallið helst því nær óbreytt milli ára. Til þess að það lækki þarf að tryggja afgang af rekstri ríkissjóðs og bæta lánsfjárjöfnuð á komandi árum. Með þessu frumvarpi er lagður traustur grunnur að því verkefni. Fjárlagafrumvarpið uppfyllir skilyrði stöðugleikareglunnar og gott betur. Reglan heimilar að hámarki 2% raunvöxt tiltekinna útgjalda en samkvæmt forsendum frumvarpsins er raunvöxturinn neikvæður um 1,1%. Það sýnir að hallalaus fjárlög nást ekki án þess að útgjaldavöxtur sé haminn umfram það sem hámark reglunnar eitt og sér krefst.

Forseti. Á tekjuhlið er markmiðið að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs, bæta skattskil og fækka undanþágum. Heildartekjur ríkissjóðs á þjóðhagsgrunni eru áætlaðar um 1.700 milljarðar kr. árið 2027, eða 30,6% af vergri landsframleiðslu. Samanlögð tekjuáhrif helstu skattbreytinga og verðlagsuppfærslna eru áætluð um 34 milljarðar kr. árið 2027. Leitast er við að dreifa byrðunum með sanngjörnum hætti. Ekki er gripið til þessara ráðstafana á tekjuhlið af neinni léttúð heldur eru þær einfaldlega nauðsynlegar til að koma jafnvægi á ríkisfjármálin. Horfa verður til þess að tekjur ríkissjóðs standi undir þjónustu sem við hvorki viljum né getum verið án. Traustir tekjustofnar og öflug grunnþjónusta haldast hönd í hönd.

Forseti. Í þessu frumvarpi er ekki lagður til flatur niðurskurður. Heildarútgjöld málefnasviða eru áætluð 1.765 millj. kr. árið 2027. Það er um 80 milljarða kr. aukning frá fjárlögum fyrra árs en þar af má rekja um 60 milljarða til launa-, gengis- og verðlagsbreytinga. Að þeim frátöldum aukast útgjöldin um 20 milljarða, eða 1,2% af landsframleiðslu. Ráðstafanir til að draga úr útgjaldavexti nema alls um 44 milljörðum kr. þar af nemur almennt aðhald tæpum 5 milljörðum kr., fækkun stöðugilda hjá ríkinu um 1% skilar rúmum 3 milljörðum og sértækar ráðstafanir rúmum 36 milljörðum. Fjárveitingar til framkvæmda eru færðar að raunverulegum framkvæmdahraða og ónýttar heimildir fyrri ára nýttar áður en nýjar heimildir eru veittar. Þrátt fyrir aðhald er skapað svigrúm fyrir ný og aukin verkefni sem nema tæpum 29 milljörðum kr. Forgangsröðunin er skýr. Framlög til félags-, húsnæðis- og tryggingamála og til heilbrigðismála aukast mest. Við höldum áfram að einfalda og bæta ríkisreksturinn. Sameining stofnana dregur úr tvíverknaði og gerir okkur kleift að nýta sérþekkingu og stoðþjónustu betur. Markmiðið er einfalt: Betri þjónusta fyrir minna fé.

Forseti. Frumvarpið sem hér er lagt fram sýnir að ábyrg ríkisfjármál og öflug velferðarþjónusta eru ekki andstæður. Til lengri tíma getur ekki annað þrifist án hins. Við stöðvum hallarekstur sem varað hefur allar götur frá árinu 2019. Við bætum afkomu ríkissjóðs um rúmlega 72 milljarða kr. milli ára. Við beitum bæði tekju- og gjaldahliðinni og sýnum það aðhald sem þarf til að verðbólga og vextir geti lækkað. Um leið verjum við grunnstoðir og grunnþjónustu og aukum fjárframlög til heilbrigðismála, almannatrygginga, barna, menntunar og samfélagslegs öryggis. Það er hvorki auðvelt né einfalt að ná þessari niðurstöðu. Hún er byggð á mörgum og markvissum aðgerðum, aga í framkvæmd og vilja til að forgangsraða. Árangurinn verður heldur ekki sjálfgefinn. Tekjuráðstafanir og hagræðing þurfa að skila því sem að er stefnt og rekstur ríkisins þarf að haldast innan fjárheimilda. Leiðin sem við erum að fara er alveg skýr. Með jafnvægi í ríkisfjármálum byggjum við upp viðnámsþrótt, drögum úr vaxtabyrði framtíðarkynslóða og sköpum svigrúm svo áfram megi bæta lífskjör og opinbera þjónustu. Við ætlum ekki að velta vandanum á undan okkur heldur taka á honum.

Forseti. Ég legg til að frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 verði vísað til 2. umræðu og hv. fjárlaganefndar eftir þessa umræðu.