fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og mér fannst margt mjög gott sem kom fram í henni. En það fer ekki alveg saman hljóð og mynd. Hæstv. fjármálaráðherra var ekki að byrja í gær. Ríkisstjórnin er búin að í rauninni framkvæma núna tvenn fjárlög og er núna komin með sín þriðju. Hæstv. ráðherra bendir réttilega á að hallinn á þessu ári verður 67 milljarðar. Hann stóð hérna og sagði: Hallinn verður 28, þetta eru ný og betri vinnubrögð. Hann sagði svo alla hlutina sem hann sagði, hann sagði: Hallinn verður 28 milljarðar, loksins er komið alvörufólk sem kann til verka. En það er ekki bara að hallinn tvöfaldist og rúmlega það heldur versnar lánsfjárjöfnuðurinn um 50 milljarða kr. Hví skyldum við trúa núna hæstv. ráðherra þegar hann talar um aga í ríkisrekstri þegar við sjáum hver staðan er í ríkisfjármálunum núna? Í ofanálag segir hæstv. ráðherra að mikilvægt sé að efla hagvöxt. Telur hæstv. ráðherra að leiðin til að efla hagvöxt sé að fara í þessar gríðarlega miklu skattahækkanir sem þessi ríkisstjórn hefur farið í? Hvar hefur það virkað, virðulegi forseti, að ná fram auknum hagvexti með því að stórhækka skatta á fyrirtæki og fólk?
Verðbólgan er stóra málið. Til þess var ríkisstjórnin kosin. Hver trúir því að hækkun skatta, sérstaklega krónutöluskatta, og það að safna skuldum eins og núverandi ríkisstjórn er að gera og sækja fram á lánamarkaðinn í þeim mæli að það getur ekki annað heldur en ýtt undir vaxtahækkanir — hvernig fer þetta saman, virðulegur forseti? Ég vildi gjarnan fá svör við þessum þremur spurningum.