fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurningarnar. Eins og kom fram í ræðu minni þá er mjög mikilvægt að við náum betri aga í ríkisfjármálum. Nú veit hv. þingmaður að þetta hefur verið langvarandi vandamál. Ég vil samt taka fram að þau frávik sem hv. þingmaður nefnir varðandi bæði hallann 2026 og lánsfjárjöfnuðinn, þau snúa varðandi hallann að vaxtakostnaði sem er í eðli sínu bara fall af verðbólgu. Það er gert ráð fyrir einhverri verðbólgu og fyrir hvert prósentustig eykst hallinn um í kringum 10 milljarða. Síðan snýr hin skýringin að kerfum sem við stýrum í sjálfu sér einingaverðunum í en ekki magninu. Þetta eru þá liðir innan sjúkratrygginga, ásókn í ákveðnar tegundir aðgerða í heilbrigðiskerfinu og annað slíkt þar sem umfangið ræðst raunverulega af eftirspurn en ekki ákvörðun Alþingis. Við höfum í þessu fjárlagafrumvarpi tekið sérstaklega til þessara liða og endurskoðað áætlanir þannig að þetta á ekki að þurfa að gerast aftur.
Varðandi hagvöxt þá held ég að allir hér séu sammála um það að grundvallaratriðið er að við náum niður verðbólgu og vöxtum. Það myndi verða stærsta vítamínsprautan inn í hagkerfið. Ég hef tekið um þetta umræðu nokkrum sinnum áður. Með hvaða hætti virka tæki Seðlabankans til að hægja á hagkerfinu og ná niður verðbólgu? Þau beinlínis hækka kostnað. Þess vegna er það að jafnaði þannig að ríkisfjármálin þurfa að spila með og stuðla að sambærilegu aðhaldi.
Ég vil bara að lokum segja að það er allt í lagi að tala um skattahækkanir, auðvitað eru skattar að hækka en þeir eru hvergi nærri í einhverju sögulegu hámarki. (Forseti hringir.) Hlutfall ríkisins í vergri landsframleiðslu er núna lægra en það hefur lengi verið.