158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:50]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en hér talaði maður sem er búinn að gefast upp. Það fer ekki fram hjá neinum að þessi ríkisstjórn er búin að gefast upp. Það að telja það upp af hverju hallinn hafi aukist er engin lausn. Það liggur alveg fyrir að við þekkjum hver verkefnin eru og það að nefna að einhvern tímann hafi verið hærri skattar — þessi ríkisstjórn var kosin út á það að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. Hvað er venjulegt fólk, hæstv. ráðherra? Ég fer yfir allar skattahækkanirnar og ég finn ekki þetta venjulega fólk því að ég hélt að það væri venjulegt fólk sem borgaði tekjuskatt, keyrði bíla. En samkvæmt skilgreiningu hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni er það ekki svo.

Ég spurði líka, af því að hæstv. ráðherra nefndi það ekki:(Forseti hringir.) Hvernig fer það saman að auka hagvöxt og hækka skatta á fyrirtæki og landsmenn? Hvernig fer það saman að lækka verðbólgu og hækka skatta, (Forseti hringir.) sérstaklega krónutöluskatta, og sækja svona hart á lánamarkaðinn eins og ríkisstjórnin gerir?