158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:52]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir síðari spurninguna. Ég taldi mig nú að vísu hafa svarað henni þegar ég fór yfir hvaða áhrif vaxtaákvarðanir og önnur stýritæki Seðlabankans hafa á eftirspurn í hagkerfinu. Það hefur verið markmið Seðlabankans að draga úr þenslu og það gerir hann raunverulega með því bara að hækka kostnað fyrirtækja og heimila og nákvæmlega hvernig hv. þingmaður gat ekki séð þetta sem svar get ég ekki skilið. Ég er að sjálfsögðu ekki búinn að gefast upp, þvert á móti. Ég veit ekki betur en að þetta séu fyrstu fjárlögin frá 2019 sem eru með afgangi þannig að ef einhver gafst upp þá var það einhver annar en ég.