158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:53]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að leiða þetta frumvarp hér fram fyrir þingið. Stjórnarliðar telja það stórfrétt að nú sjái fram á hallalaus fjárlög. Ég minni á að á yfirstandandi ári hafa útgjöld ríkisins hækkað um meira en 30 milljarða umfram það sem áætlað var, þau hafa hækkað meira en 30 milljarða umfram það sem ríkisstjórnin boðaði þegar fjárlög þessa árs voru kynnt.

Agi í framkvæmd fjárlaga. Hæstv. ráðherra er tíðrætt um aga í framkvæmd fjárlaga. Er þetta agi þegar útgjöldin vaxa langt umfram það sem ríkisstjórnin áætlar? Við hverju má búast á næsta ári þegar hæstv. ráðherra boðar hallalaus fjárlög og afgang, sem er nú reyndar vel innan skekkjumarka, 5 milljarðar? Við hverju má búast þegar þau ráða ekki betur við það en þetta? Eina lausn þessarar ríkisstjórnar er að hækka skatta. Það er þeirra eina úrræði vegna þess að ef litið er á sparnaðaráform ríkisstjórnar þá eru þau afskaplega rýr, 44 milljarðar, þar af töluvert margir milljarðar, ég held yfir 10, þar sem er gengið á uppsafnaðar fjárheimildir. Það er í raun eitthvað sem þú setur í sparibaukinn og ætlar að kaupa eldavél, tæmir svo sparibaukinn og sleppir því að kaupa þér eldavélina og kaupir þér einhvern gasofn. Þetta er svipað. Er þetta sparnaðurinn? Ríkisstarfsmenn, 1%. Eru menn búnir að ná því, 1%? Það eru 200 manns. Ríkisstarfsmönnum hefur fjölgað síðustu ár um mörg hundruð á hverju einasta ári í fjöldamörg ár. Þetta er hænuskref að mínu mati, hænuskref. Ríkisstjórninni er ekki alvara með að spara og henni er ekki alvara með að sýna aga í framkvæmd fjárlaga að þessu upptöldu. Þess vegna spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Er ríkisstjórninni alvara með því að stefna að hallalausum fjárlögum?