fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir spurningarnar. Það er raunverulega þannig að hv. þingmaður spurði sömu spurningar og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson; um ástæður frávika í rekstri núna. Ég fór yfir það að þetta eru tveir liðir, annars vegar fjármagnskostnaður. Raunar eru þetta aðallega bókfærðir liðir sem eru þá verðbætur á verðtryggðar skuldir ríkisins sem nema 1% fyrir hvert prósent í fráviki í verðbólgu sem er. Það er stærstur hluti og síðan eru það liðir sem raunverulega hefur verið tekin ákvörðun um í þessum sal, og ekki af þessari ríkisstjórn heldur fyrri ríkisstjórnum, að væru greiddir óháð því hvort það væru til peningar fyrir því eða ekki. Þjónusta sem við veitum, óháð því hvort peningar eru til staðar eða ekki.
Varðandi aga í ríkisrekstri þá hef ég raunverulega engu sinnt meira heldur en einmitt þeirri spurningu: Hvernig kynnum við aga í ríkisrekstri? Ég hef ítrekað gert þetta að umræðuefni í þessum sal. Það sem þessi ríkisstjórn er að gera og mitt ráðuneyti er að gera núna er að auka verulega við það sem kallað er framkvæmd fjárlaga sem er þá bara miðlægt eftirlit með útgjöldum. Ég vil fá að segja hér að í langsamlega flestum tilfellum og fyrir langsamlega flestar ríkisstofnanir er agi í rekstrinum. En það eru ákveðin vandamál og á þeim þurfum við að taka.
Hitt verkefnið sem átti nú á sínum tíma að fara af stað árið 2017, en af einhverjum ástæðum var aldrei klárað en við erum að fara af stað með aftur, er svokallað endurmat útgjalda sem er aðferðafræði sem öll nágrannalöndin beita. OECD hefur tekið þátt eða er að vinna með okkur í því að innleiða slíkt fyrirkomulag á Íslandi. Í stuttu máli gengur það út á að spyrja spurningar sem ég held að við spyrjum allt of sjaldan, sem er: Myndum við gera hlutina með þeim hætti sem við gerum í dag ef við værum að byrja á þeim núna? Það er nefnilega í grundvallaratriðum þannig að agi í rekstri fyrirtækja kemur einfaldlega frá markaðnum. Þau fara í gegnum það sem stundum er kallað skapandi eyðilegging, þ.e. komist markaðurinn að því að aðföngin séu meira virði heldur en afurðirnar þá einfaldlega hættir fyrirtæki starfsemi. Slíkt ferli er ekki til hjá hinu opinbera. Þessi aðferðafræði um endurmat útgjalda er hugsuð til þess að reyna að leiða eitthvað slíkt í ljós.