158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:01]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Forseti. Við erum byrjuð á fjárlagaumræðunni, umræðu um fjárlagafrumvarpið fyrir 2027. Það sem vekur sérstaka athygli mína eru krónutöluhækkanir upp á 5,2%, verðlagsforsendur 5,2%. Það eru engin merki gefin um það að menn ætli að elta verðbólgumarkmið Seðlabankans í þessu frumvarpi. Nei, það á bara að hækka krónutölugjöldin um 5,2% sem er áætluð verðbólga þessa árs. Það er náttúrlega með hreinum ólíkindum að standa svona að málum. Við höfum ekki séð þetta áður. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um nákvæmlega þetta atriði. Af hverju er þessi lausung viðhöfð varðandi verðlagsforsendur, 5,2% sett inn í töluleg markmið í frumvarpinu en ekki lögð meiri áhersla á forsendur Seðlabanka Íslands um verðbólgumarkmið? Þetta er lykilatriðið í öllu. Hvaða skilaboð eru þetta til sveitarfélaganna sem eru að fara í sína fjárhagsáætlanagerð þessar vikurnar? Eiga þau að fara að setja líka 5,2% hjá sér? Á atvinnulífið, ASÍ, SA, vinnumarkaðurinn, að gera ráð fyrir þessu í sínum áætlunum á tímum þar sem menn vilja margir horfa til þjóðarsáttar eins og í febrúar 1990? Það eru engin merki gefin um það í þessu frumvarpi að það eigi að ná einhverjum slíkum markmiðum, að lækka verðbólgu og vaxtastigið í landinu, sem er höfuðmarkmið þessarar ríkisstjórnar og út á það var hún kosin. Þetta er algjört lykilatriði og ég vil fá skýr svör um þetta: Hvernig eigum við að fara inn í þennan vetur varðandi sveitarfélögin? Eiga þau bara að fara í sína fjárhagsáætlanagerð eftir þessu markmiði ríkisstjórnarinnar? Eiga komandi kjarasamningar að vera gerðir á sömu forsendum?

Þetta er nefnilega ákveðið skipbrot hjá þessari ríkisstjórn, (Forseti hringir.) þessi markmið sem við sjáum varðandi verðbólgu og vaxtastigið í landinu.