158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna. Nú höfum við auðvitað rætt það hér í þessum sal, og það kom raunar líka fram í svari mínu til hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, hvernig ákvarðanir Seðlabankans hafa áhrif á eftirspurn og hvað vinnur með og gegn vinnu Seðlabankans. Sú fullyrðing hv. þingmanns að krónutölugjöld fylgi ekki verðlagi er nú, held ég, ekki alveg rétt og hv. þingmaður ætti að kynna sér betur hvernig þær ákvarðanir hafa verið teknar í gegnum tíðina. Það er hins vegar þannig að ef við ætlum að hafa krónutölugjöld, sem er auðvitað ákvörðun þeirra sem í þessum sal sitja, þá er skrýtið að leyfa þeim að rýrna með verðbólgu af því að það er þá raunverulega ákvörðun sem gengur gegn upprunalegri ákvörðun um að leggja þau á.

Ég vil svo í þessu samhengi minna hv. þingmenn á að byggja fullyrðingar á gögnum. Áhrif krónutölugjalda á verðlag á þessu ári eru hverfandi. Meginástæða hárrar verðbólgu er í raun bara tveir liðir í vísitölunni; annars vegar flugfargjöld og hins vegar eldsneyti. Það eru liðirnir sem hafa lyft upp verðbólgu á þessu ári á meðan áhrif ríkisins merkjast raunverulega ekki.