fjárlög 2027.
Frú forseti. Þá kemur nefnilega önnur spurning eftir þetta svar hæstv. ráðherra: Eiga sveitarfélögin í landinu að fara sömu leið og ríkissjóður og reikna með 5,2% á sína tekjustofna? Er það málið? Er það nálgunin sem fjármálaráðuneytið og ríkisstjórnin eru að boða í þessu fjárlagafrumvarpi, um hvernig eigi að standa að ríkisfjármálunum á næsta ári? Þetta er nefnilega mjög stór spurning. Stýrivextir hafa farið hækkandi, það er búið að hækka þá núna þrisvar um 75 punkta á undanförnum mánuðum. Ríkisstjórnin tók við góðu búi, tók nefnilega við góðum fjárlögum sem voru samþykkt í nóvember 2024. Stýrivextir voru farnir að lækka það haust og héldu áfram að lækka fyrstu fimm mánuðina. Síðan hefur bara hallað undan fæti. Það hefur nefnilega hallað undan fæti og við þurfum að halda því til haga í umræðunni um fjárlögin hvernig ríkisfjármálin, stýrivextir og hvernig hlutirnir hafa verið að þróast. (Forseti hringir.) Þetta er nefnilega lykilatriði máls.