158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir spurninguna. Það er auðvitað sveitarfélaganna sjálfra að ákveða eigin verðskrár. Varðandi þær fullyrðingar sem komu fram í máli hv. þingmanns um þróun og einhvers konar orsakasamhengi milli fjárlaga síðustu ríkisstjórnar og hagþróunar á tímabilinu þá vil ég aftur undirstrika það sem ég var rétt áðan að segja: Það eru tveir liðir sem skýra hækkun verðbólgu á þessu ári að langsamlega mestu leyti. Það eru flugfargjöld og það er eldsneytiskostnaður. Tveir liðir. Hvorugur er þjónusta sem ríkið veitir og báðir eru fall af heimsmarkaðsverðþróun. Þetta kemur auðvitað á óheppilegum tíma en menn verða að kynna sér málin áður en þeir búa til orsakasamhengi.