158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:08]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Hallalaus fjárlög og markmið ríkisstjórnar um að ná þeim fram hér með þessu fjárlagafrumvarpi eru mjög jákvæð og við tökum undir þau markmið. En hæstv. ráðherra segir að þetta séu fyrstu hallalausu fjárlögin frá árinu 2019 og það er alveg rétt. En hæstv. ráðherra skautar hins vegar algerlega fram hjá því hvað gerðist á þessum árum sem varð til þess að uppsafnaður halli er með þeim hætti sem hann er í dag, líkt og Covid og jarðeldar og að hér voru keyptar upp íbúðir hjá heilu sveitarfélagi. Núna í ár stefnir í tuga milljarða hallarekstur en engin áföll hafa dunið á ríkissjóði í líkingu við það sem gerðist í tengslum við Covid og jarðeldana. Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á 4,7 milljarða afgang á næsta ári en reynslan á árinu í ár sýnir hversu brothætt sú niðurstaða getur orðið. Afkoma þessa árs stefnir í 39 milljarða kr. lakari árangur en samþykkt fjárlög gerðu ráð fyrir. Fjármálaráðuneytið sjálft hefur viðurkennt áhættuna og sýnt að í svartsýnustu sviðsmyndinni, ef allt fer á versta veg, sem við auðvitað bindum vonir við að gerist ekki, getur afgangurinn á næsta ári breyst í um 65 milljarða kr. halla, þ.e. ef hagvöxtur verður minni, atvinnuleysi meira og verðbólguvextir hærri en gert er ráð fyrir. Við vitum líka að óvæntir atburðir geta kallað á mikil útgjöld með litlum fyrirvara þannig að 4 milljarðar eru ekki mikið öryggissvigrúm í ríkisrekstri af þessari stærð.

Ég vil því spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Til hvaða aðgerða eða viðbragða ætlar ríkisstjórnin að grípa ef eitthvað óvænt kemur upp á næsta ári, ekkert ósvipað því sem gerist núna í ár? Verður brugðist við með frekari skattahækkunum, niðurskurði í þjónustu eða aukinni lántöku? Hæstv. ráðherra talar líka um aga í ríkisfjármálum. Það er ekki gert ráð fyrir neinu aukafjárframlagi (Forseti hringir.) varðandi framkvæmdir í Fljótagöngum og mér heyrðist það á ræðum hér í gærkvöldi að það ætti að fara að bora göng. Til þess þarf aukið fjármagn. Er agi í því að kalla eftir fjárauka til þess að mæta þeirri aðgerð þegar ekki er gert ráð fyrir því núna í fjárlögum?