fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurningarnar. Hv. þingmönnum verður tíðrætt um áföll og ég hef farið mjög varlega í að gera lítið úr því. Það er samt ljóst eftir á að hyggja að umfang stuðningsaðgerða og hallareksturs ríkisins sem gripið var til vegna þeirra var of mikið og stóð of lengi og varð á endanum ástæðan fyrir þeirri viðvarandi verðbólgu sem við búum við. Það er mjög miður en af því þurfum við að draga lærdóm.
Hv. þingmaður kemur og segir: Engin áföll á þessu ári. En þrátt fyrir allt er stríð í Miðausturlöndum sem hefur áhrif á eldsneytisverð, það er fyrst og fremst ástæðan fyrir hækkandi verðbólgu sem veldur því að verðbætur reynast hærri en gert var ráð fyrir og það stríð sá enginn fyrir. En til hvaða viðbragða á að grípa? Það fer eftir því hvaða áfall dynur á. Verði áfallið sjokk sem leiðir til verulegs atvinnuleysis þá þarf að grípa til stuðnings af hálfu hins opinbera til að jafna það út. Sé áfallið einhvers annars eðlis þá verður gripið til annarra aðgerða.
Varðandi Fljótagöng sérstaklega þá vil ég benda á að ríkisstjórnin hefur verið mjög skýr með að framkvæmd Fljótaganga verður á hendi innviðafélags og það verður þá eiginfjárframlag til innviðafélags sem mun standa straum af kostnaði þess vegna.