158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:14]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurningarnar. Ég hef í nokkrum svörum farið yfir hvers vegna hækkanir opinberra gjalda eru iðulega ekki liður sem seðlabankar horfa á, horfa í gegnum einmitt vegna þess að þær toga í sömu átt og aðgerðir Seðlabankans. Þegar Seðlabankinn hækkar vexti er hann að hækka kostnað heimila og fyrirtækja til að draga úr eftirspurn og allar þær greiningar sem liggja fyrir, m.a. greiningar Hagstofunnar sem heldur úti sérstakri vísitölu til að mæla áhrif ákvarðana hins opinbera á verðlag, styðja ekki þann málflutning sem hér kemur fram. Það eru tveir liðir sem hafa dregið áfram verðbólguna. Það eru flugfargjöld og eldsneyti. Áhrif ríkisins mælast vart. Við erum í uppbyggilegu samtali við aðila vinnumarkaðarins. Ýmislegt er þar til umræðu. Eðli málsins samkvæmt get ég ekki tjáð mig um hvað það er sem þar er undir (Forseti hringir.) en ég vona að það leiði til farsællar niðurstöðu á komandi dögum.