fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Í þessum stól á síðasta kjörtímabili stóð stjórnmálamaður sem sagði: Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að ná niður verðbólgu þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Og hvar skyldi sá stjórnmálamaður vera núna? Jú, sá stjórnmálamaður er hæstv. forsætisráðherra. Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að ná niður verðbólgu þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Hvað varð um þessa speki? Ég sagði hér áðan, virðulegur forseti, að hér talaði um fjármálaráðherra sem væri búinn að gefast upp. Hæstv. fjármálaráðherra er í ríkisstjórn með hæstv. forsætisráðherra sem sagði: Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að halda aftur af verðbólgu þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Og hér kemur hæstv. ráðherra og hann bendir bara á Seðlabankann. Hann bendir á áföll sem eru pínulítil, agnarsmá í samhengi við það sem hæstv. ráðherra og stjórnarliðar hafa gagnrýnt síðustu ríkisstjórn fyrir. Agnarsmá. Trúðu mér, virðulegi forseti, þær ríkisstjórnir sem sátu hefðu gjarnan viljað skipta á þessum áföllum, Covid og Reykjaneseldum. Þegar Covid var ekki nóg þá fengum við Reykjaneseldana líka.
Hér kemur hæstv. ráðherra sem er búinn að gefast upp og segir að hann geti ekkert gert í þessari verðbólgu, bara ekki neitt, af því að flugfarseðlar hafa hækkað. En forsætisráðherra las yfir þingi og þjóð og sagði: Þegar ríkisstjórnir gera lítið til að halda aftur af verðbólgu þá verður Seðlabankinn að gera meira. Ýmislegt hefur breyst en ekki þetta því að þetta var alveg rétt hjá hæstv. ráðherra, ríkisstjórnir geta gert mikið til að halda aftur af verðbólgu. Þessi ríkisstjórn var kosin til að halda aftur af verðbólgu. Og þegar þessi ríkisstjórn tók við — og það vita allir og hæstv. ráðherra hefur margoft bent á það enda eru það augljósar staðreyndir, hann gerði það áðan ágætlega — þá tók hún við góðu búi. Vextir voru byrjaðir að lækka.
Hvað er búið að gerast síðan þessi hæstv. ríkisstjórn tók við? Vextir hafa hækkað og hækkað. Þessi ríkisstjórn er með nýjar hugmyndir sem við höfum ekki heyrt áður. Það á að ná fram hagvexti með auknum sköttum og gjöldum. Svo ætla menn að lækka verðbólgu með því að hækka skatta og gjöld og skuldir. Þessi ríkisstjórn ætlaði að gera allt miklu betur heldur en nokkurn tíma hefur sést áður. Hún er að vísu á miðju kjörtímabili sínu, framkvæmd fjárlaga er í ólestri og það eru fullkomin ósannindi hjá hæstv. ráðherra að tilnefna ekki og fara ekki í gegnum alla þá liði sem hafa farið fram úr því það er miklu meira heldur en hæstv. ráðherra hefur nefnt. Reyndar er það þannig að það hefur margt hjálpað ríkisstjórninni því að tekjurnar hafa verið meiri. En hin ýmsu gjöld hafa hækkað og það er ekki bara fjármagnskostnaðurinn.
Hæstv. ráðherra talar um aga og áætlanagerð og breytt vinnubrögð. Gæti verið t.d. að áætlanagerðin þegar kemur að heilbrigðismálum hafi ekki verið raunhæf eins og með lyfin? Þrátt fyrir öldrun þjóðarinnar gerðu menn ekki ráð fyrir neinni aukningu. Sjúkratryggingar eru að fara 12 milljarða fram úr áætlun. Gæti verið einhver tenging þarna á milli, að menn hafi ekki horft á raunveruleikann þegar þeir gerðu sínar áætlanir?
Virðulegur forseti. Forystumenn þessarar ríkisstjórnar lofuðu því með eftirminnilegum hætti að það ætti ekki að hækka skatta á venjulegt fólk. Er ekki kominn tími til þess að forystumenn ríkisstjórnarinnar fari að skilgreina hverjir eru venjulegt fólk? Hvaða fólk er þetta? Ekki eru þetta fjölskyldurnar í landinu. Ekki er þetta vinnandi fólk í landinu. Ekki er þetta fólk sem þarf á sjúkrahúsþjónustu að halda. Hvað er venjulegt fólk? Ekki er þetta fólk sem keyrir bíl. Hvar er þessi hópur, þetta venjulega fólk sem þau ætluðu ekki að skattleggja? Þau lofuðu því. Hæstv. ríkisstjórn tók við í desember 2024. Árið 2025 urðu tekjur ríkissjóðs 60 milljörðum meiri heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ríkisstjórnin kom með fjögur fjáraukalög og hér segir hæstv. ráðherra að menn hafi ekki gengið nógu hart fram í því að minnka ríkisútgjöld eftir Covid. Gerðu þeir eitthvað í því 2025? Nei. 2026 vorum við vöruð við því af öllum aðilum að fjárlög þess árs væru ekki raunhæf. Hver er niðurstaðan? Þau eru ekki raunhæf. Þau ganga ekki eftir.
Þau komu með fjármálaáætlun síðasta vor. Þar kemur fjármálaráð sem samanstendur af tveimur doktorum í hagfræði og einum master og hefur það eina hlutverk að benda á veikleika í fjármálaáætlun. Hvað gerði hæstv. ríkisstjórn gagnvart gagnrýni og álitsgerð fjármálaráðs sem gekk út á að þetta væri allt of bjartsýnt, þetta væri ekki trúverðugt og myndi ekki slá á verðbólguvæntingar vegna þess að menn væru — þrátt fyrir að þeir segðu að það væri afkomubati og þeir ætluðu að hafa 1 milljarð í afgang, núna eru þeir 4 — að safna skuldum? Sömuleiðis væru ríkisfjármálin ekki sjálfbær og það þyrfti að grípa til aðgerða af því að það væri forsendubrestur þegar hæstv. ríkisstjórnin fór í þær lagabreytingar sem hún gerði.
Virðulegur forseti. Hvað gerði hæstv. ríkisstjórn gagnvart þessu? Ekkert. Það var ekkert gert með álitsgerð fjármálaráðs. Nú koma menn með þessi fjárlög, segja sömu hlutina og þeir sögðu síðast þegar þeir lögðu fram fjárlög. Þetta eru sömu orðin. Gekk það eftir sem hæstv. ríkisstjórn sagði síðast? Nei. Við sjáum það í framkvæmd fjárlaga. Eina lausn þessarar ríkisstjórnar — og þar eru endalausir möguleikar að því er virðist — er að hækka skatta og hækka gjöld. Það sem hún var kosin til, virðulegur forseti, var að lækka vexti, það var að lækka verðbólgu. Það er öllum ljóst, virðulegur forseti, sem hlustuðu hér á hæstv. ráðherra að þessi ríkisstjórn hefur gefist upp á því verkefni. Það eru mjög slæmar fréttir fyrir almenning og venjulegt fólk í landinu.