158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hvað hef ég fyrir mér í því? Ég hef það fyrir mér að ég er með fjárlög fyrir framan mig. Ég var með fjármálaáætlun sem við fjölluðum um í vor þar sem komu fram mjög alvarlegar athugasemdir frá fjármálaráði. Allir hagaðilar sem komu þar inn tóku undir með fjármálaráði. Ég man ekki eftir því að það hafi verið gert áður að menn uppfærðu ekki einu sinni fjármálaáætlunina þegar meiri hluti hv. fjárlaganefndar kláraði málið. Það var ekkert komið til móts við athugasemdir fjármálaráðs, í engu. Síðan sjáum við fjárlögin og við erum á nákvæmlega sama stað. Fjármálaráð sagði að við þyrftum að endurskoða stöðugleikaregluna vegna þess að það er forsendubrestur, þessar lagabreytingar sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir. Fjármálaráð sagði: Þið eruð að stefna að ósjálfbærum opinberum fjármálum. Þetta hefur áhrif á 30% af fjárlögunum. Fjármálaráð sagði: Þetta eru allt of bjartsýnar forsendur. Fjármálaráð sagði: Þið eruð ekki að slá á verðbólguvæntingar ef þið aukið skuldir svona mikið eins og raun ber vitni. Það er ekkert komið til móts við þetta, það var ekki gert þegar fjármálaáætlun var kláruð og það er ekki gert núna. Af hverju heldur þú að fjármálaráð sé til, virðulegur forseti? Það er til þess að benda hæstv. ríkisstjórn og þingheimi á þá galla sem eru til staðar, ekki pólitík heldur faglegar athugasemdir. (Forseti hringir.) Ég segi: Ríkisstjórn sem tekur ekkert á þessu, svarar þessu ekki einu sinni, sú ríkisstjórn er búin að gefast upp. Svo sé ég líka framkvæmd fjárlaga og ýmislegt annað sem bendir til þess að þessi ríkisstjórn sé búin að gefast upp.