fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svarið. Sem sagt: Túlkun hv. þingmanns á því hvað það er að gefast upp á verkefninu er hvort og með hvaða hætti fjármálaráði var svarað, ekki hvað ríkisstjórnin raunverulega gerði. Það finnst mér á margan hátt mjög athyglisverð túlkun. Við erum hér og ég var að mæla fyrir fyrstu hallalausu fjárlögunum frá 2019. Við erum að ná áfanga nr. 2 í því að ná aftur tökum á áralöngum ósjálfbærum rekstri ríkissjóðs og mér finnst þetta mjög sérstakt, að taka einhvern veginn söguna fram yfir raunveruleikann er að mínu viti mjög sérstök nálgun á lífið.
En ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og mig langar til að víkja hér smá spurningu að honum sem er, án þess að ég sé að benda á neinn: Telur hv. þingmaður að umfang og lengd Covid-aðgerðanna, eftir á að hyggja, hafi verið réttlætanleg?