158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi Covid þá var margt gott gert þar en hefði mátt gera margt betur. Sem betur fer hlustuðum við ekki á stjórnarflokkana núverandi og gerðum meira, en þeir hvöttu til þess.

Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hæstv. fjármálaráðherra var að tala hér niður álitsgerð fjármálaráðs með þeim hætti að það eitt og sér er mjög alvarlegt mál. Fjármálaráð sagði, og allir geta kynnt sér þetta: Jú, jú, það er jákvætt að reyna að ná hallalausum fjárlögum en það er mjög margt annað sem þið verðið að taka tillit til. Mér er til efs að nokkurn tímann hafi komið jafn harðorð álitsgerð fjármálaráðs og hér kemur hæstv. ráðherra og gerir bara ekkert með þetta. Hann gerir ekkert með ósjálfbærnina, menn nálgast það ekki með neinum hætti. Lánsfjárjöfnuðurinn — fjármálaráð hafði rangt fyrir sér, þetta er verra en fjármálaráð lagði upp með. Menn eru að safna meiri skuldum en fjármálaráð hafði áhyggjur af og það er ekkert gert með það.

Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Ef ég var ekki sannfærður um uppgjöf hæstv. ráðherra fyrir þá tókst honum fullkomlega að sjá til þess að það er enginn vafi í mínum huga eftir þessar athugasemdir hans.