158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:33]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vil vekja athygli hans á því enn fremur að við erum að gera ýmislegt og hann virðist ekki taka eftir því að við erum hér að ræða fjárlagafrumvarp sem gerir ráð fyrir því að það sé afgangur. Við erum að skila vonandi hallalausum fjárlögum og það er einmitt liður í því að ná utan um vandann.

En hvenær eru menn að hækka skatta og hvenær ekki? Ég vil vekja athygli á því að menn hækka skatta um leið og þeir taka ákvarðanir um útgjöld. Þegar menn taka ákvörðun um halla, jafnvel svo árum skiptir, sem nemur á níunda hundrað milljörðum kr., uppsafnaður halli frá síðustu árum, frá árinu 2019, þá eru menn um leið að taka ákvörðun um tekjuöflun því að það þarf að stoppa í þetta gat. Það er það sem við erum að gera. Ég vil líka vekja athygli hv. þingmanns á því, vegna þess að hann talar um aðhald og að ríkisstjórnin sé ekki að gæta að því, að hér er ný tafla sem kemur frá þeirri ágætu stofnun, Byggðastofnun, þar sem er greint frá því að á árum fyrri ríkisstjórna, tíu ára tímabili, fjölgaði ríkisstarfsmönnum um 25%. Árið 2025 þá hægði verulega á þeirri fjölgun, það var nánast ekki neitt. Það var fyrsta heila ár ríkisstjórnarinnar frá því að hún tók við völdum. Þannig að við höfum hér tækifæri og ég vona svo sannarlega að við fáum bjartari tón í stjórnarandstöðuna, að hún komi með okkur í lið við að ná endum saman því það skiptir máli að við sláum á verðbólguvæntingar, þær eru einn liður í því að þrýsta verðbólgunni upp. Það er á ábyrgð allra þingmanna að stilla þeim væntingum í hóf og í samræmi við raunveruleikann (Forseti hringir.) sem þetta fjárlagafrumvarp boðar.