fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil vekja athygli hv. þingmanns á því að fjölgun ríkisstarfsmanna, eins og fram kemur í umræddri töflu Byggðastofnunar, nær langt aftur fyrir jarðeldana á Reykjanesi og Covid þannig að við erum ekki að tala um þróun hvað varðar fjölgun ríkisstarfsmanna á vakt Sjálfstæðisflokksins sem beina afleiðingu af því, ég tel að það sé rétt. Síðan er spurt: Er skattahækkun góð leið til þess að ná niður verðbólgu? Það er leið til þess ef verðbólgan stafar af því að það er of mikið peningamagn í umferð, þá ætti hún að hafa svipuð áhrif og hækkun stýrivaxta, þ.e. draga fjármagn út úr veltunni þannig að menn minnki spennuna. Það er alveg þekkt leið til þess að minnka verðbólgu auk þess að hækka stýrivexti og hækka vexti. En síðan er auðvitað hitt, að þegar verðbólgan stafar af innflutningi, t.d. háu hráefnisverði olíu, (Forseti hringir.) þá er hækkun stýrivaxta ekki góð leið. Það er einmitt það sem ég hef gagnrýnt Seðlabankann fyrir. Menn eigi miklu frekar að hægja á þessum kostnaðarauka sem vaxtahækkanir eru.