fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Það er bara sjálfsagt að ræða fjölgun ríkisstarfsmanna og ég er með skýrslubeiðni t.d. um hvaða áhrif stytting vinnuvikunnar hefur og síðan vitum við náttúrlega að með breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar hefur reynt m.a. á heilbrigðisstarfsemina, þetta er mikilvægt að skoða.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður svaraði því ekki af hverju þeir lofuðu fyrir kosningar að hækka ekki skatta. Núna finnst hv. þingmanni það bara gott að hækka krónutöluskatta til að lækka verðbólgu og líka auka skuldir til að lækka verðbólgu og auka hagvöxt. Ég get ekki skilið hv. þingmann öðruvísi. Öðruvísi mér áður brá. Ég er alveg sannfærður um að það lækkar ekki vexti ef ríkissjóður er að sækja lánsfé til að halda sér gangandi. Hvernig má það vera, virðulegi forseti, að það lækki vexti og verðbólgu þegar ríkissjóður er mjög þurftarfrekur á lánamarkaðnum? (Forseti hringir.) Hv. þingmaður er augljóslega ánægður með þetta en hann svaraði ekki spurningunni: Af hverju lofuðuð þið fyrir kosningar að hækka ekki skatta?