158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:41]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir ræðuna en finnst umræðan dálítið stúrin, hvort það sé virkilega ekkert sem þingmaðurinn sjái jákvætt í nýframkomnum fjárlögunum sem eru lögð fram hallalaus í fyrsta skipti síðan 2019. Uppsafnaður halli á árunum 2019–2026 er 866 milljarðar, einn þriðji af skuldum ríkisins, ríkissjóðs. Þetta ætti að vera gleðiefni. Líka það að vinna á innviðaskuldinni og byggja svo hraustlega upp í hjúkrunarheimilum að hinn frægi fráflæðisvandi hafi minnkað. Þetta eru bara nokkrar hugmyndir um sólskinsblett í heiði sem þingmaðurinn hefði getað staðnæmst við. Og af því að okkar bíður áhugavert og skemmtilegt starf í fjárlaganefndinni þá vildi ég fá þingmanninn aðeins til að nefna ekki bara löst heldur líka styrkleikana í þessu og hvar þingmaðurinn telji fjárlaganefnd helst eiga að drepa niður í störfum sínum á næstu vikum.