fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég hafði bara ekki hugmynd um að þessi umræða ætti að vera einhver skemmtidagskrá. Við erum hér að ræða alvarlega hluti. Við erum að ræða stöðu ríkisfjármála. Við erum að ræða efnahagsmálin. Við erum að ræða stöðu heimilanna, við erum að ræða stöðu venjulegs fólks. Við erum að ræða sömuleiðis hvernig við ætluðum að auka hagvöxt og bæta lífskjörin í landinu. Ég bara vissi ekki að þetta væri einhver „stand up“-keppni. Auðvitað er fullt jákvætt í fjárlögunum, skárra væri það nú. Á tíu mínútum get ég örugglega ekki nefnt það allt saman. En ég er hér að vekja athygli á alvöru máls af því að hv. þingmaður og stjórnarliðar koma hér og segja: Heyrðu, þetta var 836 milljarða halli. Ég vil spyrja hv. þingmann af því að hann er í flokki sem vildi að hallinn yrði meiri, Samfylkingin og Viðreisn sögðu að það væri ekki nóg að gert og það ætti að setja meiri fjármuni í þetta: Hversu mikill hefði hallinn orðið ef við hefðum farið eftir tillögum Samfylkingarinnar og Viðreisnar á sínum tíma? Þetta voru Covid og Reykjaneseldar en stjórnarandstaðan var alveg skýr: Þið gerið ekki nóg, þið verðið að gera meira, setja meiri peninga. Hefði hallinn verið 900 milljarðar, 1.000 milljarðar? Hvað hefði hann verið mikill?
Spurningin er hvort það sé eitthvað jákvætt í fjárlögunum og skárra væri það nú. En við verðum að horfa á hlutina eins og þeir eru og staðan er mjög alvarleg þegar við sjáum þessi fjárlög. Hv. þingmaður þekkir mjög vel að það hefur ekkert verið gert með tillögu fjármálaráðs. (Forseti hringir.) Það var ekki um það fjallað í meirihlutaáliti hv. fjárlaganefndar og fjármálaáætlunin ekki einu sinni uppreiknuð. Það er alvarlegt.