fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og við erum þá alla vega sammála um að þetta er engin skemmtidagskrá. Ég get bara staðfest það hér og nú. Þegar við erum að tala um þennan halla aftur í tímann þá er það ekki bara sagnfræði heldur til þess að átta okkur á stærðargráðunni og hvað þetta hefur reynst erfitt verkefni. Hallinn tengist vissulega Covid og Grindavík en það var halli á ríkissjóði áður en Covid skall á. Það var líka halli á ríkissjóði áður en flugfélagið WOW fór á hausinn. Það var einfaldlega kerfisbundinn vandi í tíð fyrri ríkisstjórnar sem ekki var tekið á áður en þessi áföll dundu yfir. Já, ég tilheyri flokki sem kallaði eftir skjótari viðbrögðum við Covid og ég studdi það. En ég held líka að það hefði þurft að draga hraðar í land annars, vegna þess að verðbólgan sem á eftir fylgdi var m.a. vegna þessa gríðarlega peningamagns í umferð og þarna komu bæði aðgerðir ríkisstjórnarinnar, eða aðgerðaleysi, og Seðlabankans inn í.